Upphaflega var sýningin sýnd á Nýja sviði Borgarleikhússins en þegar allar sýningarnar seldust upp á mettíma varð ljóst að færa þurfti sýninguna á stærra svið og hefur hún verið sýnd á Stóra sviðinu frá því í ágúst 2017.
Sýningin er orðin sú sýning sem hefur verið sýnd oftast í leikhúsinu og hefur hún slegið áhorfendamet en fjöldi áhorfenda mun fara upp í 104.446 eftir lokasýninguna í kvöld. Sýningin hefur verið tilnefnd til átta Grímuverðlauna og unnið tvenn.
Höfundar leikritsins eru þeir Ólafur Egill Egilsson og Gísli Örn Garðarsson og er sá síðarnefndi einnig leikstjóri sýningarinnar.
Katrín Halldóra Sigurðardóttir fer með hlutverk Ellyar í sýningunni og hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína sem söngkonan sáluga. Björgvin Franz Gíslason leikur Ragga Bjarna í sýningunni en með önnur hlutverk fara þau Björn Stefánsson, Hjörtur Jóhann Jónsson og Katla Margrét Þorgeirsdóttir.

Eins og lítill tímaflakkari sem talar til fólks
Katrín Halldóra segir það vera skrítna tilfinningu að kveðja sýninguna. Hún sé spennt fyrir kvöldinu en á sama tíma sé hópurinn að klára ótrúlegt ævintýri saman.„Ég er eiginlega bara við það að fara að gráta,“ segir Katrín Halldóra í samtali við Vísi. Hópurinn sé svo lítill og náinn að það sé erfitt að kveðja þetta verkefni sem þau hafa unnið að miklu leyti saman.
„Þetta er ferðalag sem við erum búin að eiga saman, sýningin er lítil og við bjuggum hana eiginlega öll til samferða og svo erum við búin að sýna hana í öll þessi skipti,“ segir Katrín sem vonaðist í fyrstu til þess að geta sýnt sýninguna að minnsta kosti fimmtíu sinnum og þótti það göfugt markmið. Nú eru sýningarnar orðnar 220 talsins.
Katrín segist vera þakklát fyrir tímann sem Elly og segir sýninguna eiga stóran stað í hjarta sér. Það sé algjörlega einstakt að fá að vera í sýningu sem tali svona til fólks og það sé dýrmætt að finna svona sterkt fyrir viðbrögðum frá áhorfendum.
„Maður finnur að maður er að gera eitthvað sem skiptir raunverulega máli því sýningin og saga Ellyar talar svo til fólks.“

Katrín segir þó erfiðast að kveðja þennan hóp sem stendur að sýningunni. Það sé svo mikill kærleikur og gleði í hópnum að hún sé meyr við tilhugsunina um að nú sé komið að leiðarlokum.
„Við erum svo ótrúlega náinn hópur, ég kalla þetta bara hina fjölskylduna mína því við erum búin að vera svo mikið saman,“ segir Katrín og grínast með að þau hafi eytt næstum mánuði samtals í hlutverkum sínum á sviðinu. „Ég veit alveg að þó við klárum þetta þá held ég að Elly verði alltaf nálægt manni.“
Á vef Borgarleikhússins segir að ferill sýningarinnar spanni rúmlega tvö ár og hefur sýningin verið sýnd í um það bil 37.400 mínútur, um 623 klukkustundir eða það sem samsvarar 26 sólarhringum.
Hér að neðan má heyra lagið Heyr mína bæn í flutningi Katrínar Halldóru.