
Móðurfélag British Airways vill 200 nýjar Boeing MAX-vélar

Skrifað var undir viljayfirlýsinguna á flugsýningunni í París sem nú fer fram en IAG á fjölmörg evrópsk flugfélög á borð við Iberua, Vueling, Aer Lingus sem og British Airways. Sé litið til listaverðs flugvélanna er pöntunin að virði yfir 24 milljarða dollara, um þrjú þúsund milljarða króna.
Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð MAX-vélanna eftir mannskæð flugslys í Indónesíu og Eþíópíu sem meðal annars hafa verið rakin til hugbúnaðars í flugstjórnarkerfi flugvélanna. Eftir seinna flugslysið var flugbann sett á vélarnar og hafa því flugfélög sem keypt hafa MAX-vélarnar af Boeing ekki getað notað þær, þar á meðal Icelandair.
Ekki er búist því að flugvélarnar fljúgi fyrr en í fyrsta lagi í haust en Boeing vinnur nú að því að fá samþykki flugmálayfirvalda fyrir því að flugbanninnu verði aflétt.
Í frétt Reuters segir að Airbus, sem stal senunni á flugsýningunni í gær þegar það kynnti nýja þotu til leiks, hafi ekki fengið tækifæri til þess að bjóða IAG flugvélar í þetta skiptið. Verði endanlega gengið frá samningum mun IAG fá vélarnar afhentar á árunum 2023 til 2027 en um er að ræða blöndu af 737-8 og 737 10.
Tengdar fréttir

Nýjasta þotan frá Airbus gæti orðið framtíðarvél Icelandair
Airbus kynnti í dag ákvörðun um að hefja framleiðslu á langdrægustu farþegaþotu heims í flokki mjórra véla með einn farrýmisgang, Airbus A321XLR.

Boeing sakað um fljótfærni við framleiðslu Max-véla
Boeing 737 MAX vélarnar voru gallaðar frá byrjun og kom bilunin snemma upp í framleiðsluferlinu. Samkvæmt afhjúpun New York Times (NYT) fengu reynsluflugmenn, verkfræðingar og eftirlitsaðilar ekki að vita um mikilvægi MCAS-hugbúnaðarins sem átti að koma í veg fyrir að flugvélin myndi ofrísa.

Hermdu eftir flugi Lion Air: „Hræðileg staða til að vera í“
"Þetta er hræðileg staða til að vera í, það er erfitt að ímynda sér þetta,“ sagði ástralski flugmaðurinn Chris Brady í fréttaskýringaþættinum 60 Minutes Australia sem sýndur var í gær. Þar var farið ofan í saumana á þeim vandamálum sem hrjáð hafa Boeing 737 MAX-vélarnar að undanförnu og meðal annars hermt eftir flugi Lion Air sem hrapaði í Indónesíu á síðasta ári.

Forstjóri Boeing viðurkennir mistök
Þetta kom fram í erindi forstjórans, Dennis Muilenburg, á flugsýningunni í París í dag.