Liverpool spilar þar til úrslita á móti Tottenham á heimavelli Atlético Madrid, Wanda Metropolitano, en leikurinn fer fram 1. júní næstkomandi.
Liverpool bendir á það á samfélagsmiðlum sínum að Trent Alexander-Arnold sé líklegur til að spila þarna sögulegan leik.
Trent Alexander-Arnold er fæddur 20. október 1998 og verður því ekki 21 árs gamall fyrr en í vetur.
Hann byrjar líklega í hægri bakvarðarstöðu Liverpool í leiknum og yrði þá fyrsti leikmaðurinn í sögu Meistaradeildarinnar til að byrja tvo úrslitaleiki í röð áður en hann heldur upp á 21 árs afmælið sitt.
Trent Alexander-Arnold hefur verið frábær hjá Liverpool á leiktíðinni og útsjónarsemi hans á móti Barcelona bjó til fjórða markið sem kom Liverpool liðinu í úrslitaleikinn.
Alexander-Arnold er búinn að gefa 16 stoðsendingar á tímabilinu úr hægri bakvarðarstöðunni, tólf í ensku úrvalsdeildinni og fjórar í Meistaradeildinni.