Eina vitið að sniðganga Ísrael Þórarinn Þórarinsson skrifar 2. maí 2019 06:19 Íslandsstræti í Jerúsalem átti að vera heimildarmynd en eftir sex ára eyðimerkurgöngu og hafa ítrekað fengið synjun hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands, gafst Hjálmtýr upp og ákvað að koma efninu frá sér á bók. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hjálmtýr Heiðdal kvikmyndagerðarmaður segist upphaflega hafa hugsað nýútkomna bók sína, Íslandsstræti í Jerúsalem, sem heimildarmynd en eftir sex ára eyðimerkurgöngu og eftir að hafa ítrekað fengið synjun hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands, „sem vill ekki snerta á þessu máli“, hafi hann gefist upp. „Ég hef náttúrulega eins og allir orðið vitni að því sem gengur á þarna og hvernig Ísraelsstjórn beitir sér með stuðningi Bandaríkjanna og það er ekkert lát á því,“ segir Hjálmtýr. „Ég er búinn að fylgjast með þessu máli síðan 1975 og sem Íslendingur hefur maður heyrt af því að Íslendingar hafi átt einhvern hlut að máli þegar Sameinuðu þjóðirnar ákváðu skiptinguna 1947.“ Hjálmtýr fer þó enn lengra aftur í tímann í bókinni og rekur sig frá Balfour-yfirlýsingunni 1917 og síðan áfram í gegnum blóðuga sögu átaka sem enn sér ekki fyrir endann á.Biblían er ekki sagnfræði „Ég fer síðan inn á hvernig Íslendingar áttu þátt í þessu og það er dálítið sérstakt vegna þess að Íslendingar, eins og yfirleitt fólk á Vesturlöndum, trúa þessum goðsögnum, þessum sögum um Móses og öllu því, sem eru í Biblíunni, um að þarna hafi verið ríki gyðinga. En Biblían er ekki sagnfræði.“ Hjálmtýr segir íslenska ráðamenn þessa tíma alla hafa trúað þessum biblíusögum og þannig fara stórkanónur fyrir Íslands hönd á þing Sameinuðu þjóðanna 1947 til að samþykkja tillöguna um að skipta Palestínu milli gyðinga og Palestínumanna, eða sem sagt heimamanna,“ segir Hjálmtýr og telur upp Ásgeir Ásgeirsson, síðar forseta, Thor Thors, bróður hans Ólaf Thors og Hermann Jónasson.Hataramenn eiga að vera á sviðinu í Tel Aviv 14. maí.RÚVÍslandsstræti liggja víða Hvað titil bókarinnar varðar segir Hjálmtýr f lesta vita um Íslandsstræti í Eistlandi og Íslandstorg í Lettlandi „og allt það en það eru voðalega fáir sem vita um Íslandsstræti í Jerúsalem sem er dálítið stór gata sem Ásgeir Ásgeirsson opnaði 1966 með pompi og prakt. Hjálmtýr segist í bókinni einnig leita lausna á deilunni og að allir hljóti að sjá að hin svokallaða tveggja ríkja lausn sé dauð. „Það er mikið talað um Ísrael sem eina lýðræðisríkið í Mið-Austurlöndum en það er ekkert lýðræðisríki sem heldur milljónum manns föngnum réttindalausum. Alveg sama hvernig menn skreyta sig með kosningum, frjálsum fjölmiðlum og mörgum einkennum lýðræðisins,“ segir Hjálmtýr og bendir á lög frá 18. júlí í fyrra sem kveða á um að rétturinn til sjálfsákvörðunar í Ísrael er gyðinga einna.“ Sniðganga er eina vitið Þú segist leita lausna í bókinni en varla hefurðu fundið leið til þess að leysa þennan blóðuga rembihnút? „Ég er að benda á að það getur aldrei orðið friður nema það verði fullkomin breyting á afstöðu Bandaríkjamanna og að fólkið í Ísrael hætti að styðja síonistana. Eina leiðin til þess að það geti gerst er þessi sniðgönguhreyfing sem er orðin nokkuð sterk,“ segir Hjálmtýr og vísar til þess að þannig hafi Frakkar gefist upp á að halda Alsír úti sem nýlendu og Suður-Afríka hafi fallið þegar umheimurinn sniðgekk hana á öllum sviðum; efnahagslega, menningarlega og í íþróttum. Hjálmtýr segir þetta vitaskuld einnig eiga við um Eurovision og að bókin hans sýni svart á hvítu hvers vegna við eigum að sniðganga Eurovision í Ísrael. „Sniðganga er eina leiðin sem almenningur og þá fyrst og fremst á Vesturlöndum hefur. Ég sé þetta sem einu leiðina. Þetta er ekki ofbeldi, heldur eina leiðin sem ég og þú höfum til þess að leiða þetta til lykta með friðsamlegum hætti.“
Birtist í Fréttablaðinu Eurovision Ísrael Mest lesið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Lífið Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun Úr öskunni í eldinn Gagnrýni Flýta jólasýningunni um klukkutíma vegna lengdar Menning Laufey á lista Obama Lífið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Pete orðinn pabbi Lífið Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Lífið Fleiri fréttir Flýta jólasýningunni um klukkutíma vegna lengdar Vangreiðslugjald orð ársins 2025 Fólk eigi ekki að vera hrætt við að skilja ekki „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Auður segir skilið við Gímaldið Ráðherra tekur sjálfur viðtöl Hvert er mest óþolandi orð íslenskunnar? Heigulsleg ákvörðun Rúv, hörundsárir listamenn og versta bók flóðsins Sigurður Sævar fyllti Landsbankahúsið „Versta hljómsveit Íslandssögunnar“ segir rappara vera með sig á heilanum Kanónur í jólakósí „Djúp menning sem hefur átt sér stað og enginn telur sig ábyrgan“ Brjálað að gera á „Brjálað að gera“ Vilja minnka allt þetta neikvæða suð Munur er á manviti og mannviti Vatn og brauð íslenskra fanga: Hvað elda menn í íslenskum fangelsum? Gefur út bók um reynsluna af því að vera útilokuð Einn heitasti listamaður landsins heldur þræði Sýnilegri í senunni á meðgöngunni Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Þetta er fólkið sem fær listamannalaun 2026 Björk og James Merry opna sýningar á Listahátíð í Reykjavík Bjó hjá Trumpara í búddistabæ í Kaliforníu Lyktarlítill dans, Lux og „metnaðarlaus stefna í íslensku“ Skilaði Kommúnistaávarpinu hálfri öld of seint en sleppur við sekt „Mér líður eins og plottið í bókinni sé að raungerast“ Helgi snýr heim: „Laus við leiðindin sem bjuggu þetta til“ Jón Ásgeirsson tónskáld er látinn Sjá meira