Axel Stefánsson hefur valið æfingahóp fyrir íslenska kvennalandsliðið í handbolta og fengið nýjan aðstoðarmann.
Axel Stefánsson, þjálfari A-landsliðs kvenna í handbolta, mun kalla á 22 leikmenn til æfinga vegna landsliðsverkefna í maí og júní.
Íslenska landsliðið kemur saman til æfinga á Íslandi 20.maí næstkomandi og mun liðið æfa saman hér á landi til 27. maí. Þá heldur liðið til Noregs þar sem stelpurnar okkar leika við B-lið Noregs þann 28. maí.
Liðið heldur til Spánar eftir leikinn í Noregi en stelpurnar okkar leika við Spánverja þar ytra 31. maí í fyrri leik í umspils um sæti á HM í desember. Síðari leikurinn við Spánverja fer fram fimmtudaginn 6.júní í Laugardagshöll.
Elías Már Halldórsson, sem verið hefur aðstoðarmaður Axels Stefánssonar, hefur óskað eftir því að láta af störfum sínum sem aðstoðarlandsliðsþjálfari vegna anna og aukinna verkefna í nýju starfi hans hjá Handknattleiksdeild HK.
Óskar Bjarni Óskarsson mun taki við starfi hans tímabundið og aðstoða Axel Stefánsson í komandi verkefni. Óskar Bjarni hefur áður starfað með karlalandsliði Íslands sem aðstoðarþjálfari.
Æfingahópur íslenska kvennalandsliðsins í handbolta:
Markmenn:
Elín Jóna Þorsteinsdóttir 18/0
Erla Rós Sigmarsdóttir 4/0
Hafdís Renötudóttir 23/1
Vinstra horn:
Sigríður Hauksdóttir 9/16
Stefanía Theodórsdóttir 13/12
Vinstri skytta:
Andrea Jacobsen 15/13
Helena Rut Örvarsdóttir 32/69
Lovísa Thompson 17/28
Ragnheiður Júlíusdóttir 25/24
Leikstjórnendur:
Ester Óskarsdóttir 26/19
Eva Björk Davíðsdóttir 30/22
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 30/60
Karen Knútsdóttir 95/336
Sandra Erlingsdóttir 1/4
Hægri skytta:
Birna Berg Haraldsdóttir 53/112
Thea Imani Sturludóttir 33/45
Rut Jónsdóttir 89/184
Hægra horn:
Díana Dögg Magnúsdóttir 15/15
Þórey Rósa Stefánsdóttir 99/288
Línumenn:
Arna Sif Pálsdóttir 147/267
Steinunn Björnsdóttir 28/14
Perla Ruth Albertsdóttir 18/23
Starfslið:
Axel Stefánsson, landsliðsþjálfari
Óskar Bjarni Óskarsson, aðstoðarþjálfari
Ágústa Sigurjónsdóttir, sjúkraþjálfari
Særún Jónsdóttir, sjúkraþjálfari
Jóhann Róbertsson, læknir
Þorbjörg Gunnarsdóttir, liðsstjóri.
Óskar Bjarni orðinn aðstoðarþjálfari landsliðsins og 22 manna hópur valinn
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið







Beckham reiður: Sýnið smá virðingu
Fótbolti


Félagið neitar að borga svo Amorim opnar veskið
Enski boltinn
