Juventus mistókst að tryggja sér titilinn 13. apríl 2019 14:45 Úr leiknum í dag. vísir/getty Juventus mistókst að tryggja sér áttunda titilinn í röð þegar liðið tapaði 2-1 fyrir SPAL í ítölsku deildinni í dag en Juventus hefði nægt jafntefli. Allegri ákvað að hvíla mikið af lykilmönnum í dag fyrir seinni leikinn gegn Ajax á þriðjudaginn og því var t.d. enginn Ronaldo og enginn Pjanic. Juventus náði forystunni í leiknum með marki frá Moise Kean á 30. mínútu og var staðan 1-0 í hálfleiknum. Liðsmenn SPAL mættu hinsvegar dýrvitlausir til leiks í seinni hálfleikinn og náðu að jafna metin strax á 49. mínútu með marki frá Kevin Bonifazi. Áfram héldu þeir að sækja grimmt og kom annað markið á 74. mínútu en þar var á ferðinni Sergio Floccari. Fleiri mörk voru ekki skoruð og kom SPAL því í veg fyrir það að Juventus tryggði sér titilinn. Ítalski boltinn