„Finnum til með okkar félagsmönnum sem starfa hjá WOW“ Birgir Olgeirsson skrifar 25. mars 2019 14:50 Berglind Hafsteinsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands. fbl/Ernir
Flugfreyjufélag Íslands fylgist grannt með stöðu WOW air en stjórn og trúnaðarráð félagsins kom saman á reglubundnum fundi fyrr í dag þar sem staða flugfélagsins var rædd. Rúmlega 400 félagsmenn Flugfreyjufélags Íslands starfa hjá WOW air en Berglind Hafsteinsdóttir, formaður félagsins, segir félagið í raun ekki hafa meiri upplýsingar en þær sem koma fram í fjölmiðlum. „Við fylgjumst með stöðunni og vonum það besta,“ segir Berglind. Félagið hefur ekki fundað með þeim félagsmönnum sem starfa hjá WOW en fylgst er grannt með stöðunni og þeim haldið upplýstum. Fari allt á versta veg og WOW air fer í þrot segir Berglind félagið eiga eftir að leita allra leiða til að tryggja réttarstöðu sinna félagsmanna. „Við munum leita til lögfræðinga félagsins og Alþýðusambandsins til að tryggja þeirra stöðu,“ segir Berglind. Hún segir fólk innan WOW virkilega áhyggjufullt. „Við finnum til með okkar félagsmönnum sem starfa hjá WOW. Þetta hefur verið mikil langtímaóvissa sem er gífurlega vont fyrir starfsmennina. Þetta er fyrirtæki sem þau vinna hjá og þau eru mjög stolt að vinna hjá WOW og við vonum það besta.“
Fréttir af flugi WOW Air Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Ljúfsárt að opna loks nýtt og stærra Kvennaathvarf Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sjá meira