
Hægt að slaka á í Strætó og hanga á netinu
„Umferðin á höfuðborgarsvæðinu þyngist á hverju ári og sífellt fleiri fara allra sinna ferða á einkabílnum. Fylgifiskur þyngri umferðar er aukin mengun, meira slit á vegum, færri bílastæði og lengri ferðatími. Við getum nánast gefið okkur að fyrir hvern starfsmann sem nýtir sér vistvænar samgöngur, minnkar álagið í umferðinni um einn heilan bíl. Tíminn sem fólk eyðir í bílnum á hverjum degi til og frá vinnu er gífurlegur og þá þarf að taka með í reikninginn tímann sem fer í að leita að bílastæði. Svo situr bíllinn meira og minna allan daginn óhreyfður fyrir utan vinnuna og svo fyrir utan heimilið,” segir Skúli.

En hvað með þá sem finnst strætó lengi á leiðinni og nenna ekki að bíða úti í öllum veðrum?
„Það spilar auðvitað mikið inn í hvar fólk býr og hvert það sækir vinnu, ferðatími getur því verið afar misjafn. Fólk er gjarnan með misgóðar minningar af Strætó fyrir 10-15 árum síðan og heimfærir það yfir á kerfið í dag. Þegar ég hitti fólk þá reyni ég að fræða þau um að þjónustan er allt öðruvísi í dag en hún var fyrir 10 árum síðan,“ segir Skúli. „Það kemur fólki til dæmis alltaf á óvart þegar ég segi því að leiðir 1 og 6 aka á 10 mínútna fresti á annatímum. Ný tækni hefur einnig gert kerfið aðgengilegra. Sem dæmi þá er hægt að nota appið til að kaupa staka miða, fylgjast með vögnunum í rauntíma og skipuleggja ferðina sína“, segir Skúli.

„Það er svo einfalt að nota Strætó í dag. Við bjóðum þeim fyrirtækjum sem gera samning við okkur að við komum í heimsókn á vinnustaðinn til að kynna kosti þess að nota vistvænan ferðamáta. Þá er farið yfir hvað fólki stendur til boða, hvernig Strætó appið virkar, hvernig finna má staðsetningu á vagninum þínum, hvernig maður finnur bestu leiðina fyrir sig og eins hvar næsta biðskýli er. Það kemur nefnilega oft í ljós að fólk hefur ekkert spáð í Strætó sem valkost og uppgötvar kannski að næsta strætóskýli er bara við hliðina á heimilinu!“
Samstarf við deilibílaþjónustu
Strætó er einnig í samstarfi við deilibílaþjónustuna Zipcar og fylgir frí mánaðarleg áskrift af bílunum með samgöngukortum Strætó.
„Bílarnir eiga stæði víðsvegar um borgina og fólk pantar þá í gegnum app og keyrir sjálft. Bílana má nota til að skutlast í styttri ferðir sem ekki er hægt að brúa með Strætó, til dæmis ef fólk þarf að skreppa úr vinnu með stuttum fyrirvara“ útskýrir Skúli. „Við leitum uppi samstarfsaðila sem styðja við vistvænan samgöngumáta. Við höfum einnig aukið tíðni strætó á annatíma og vagnarnir aka lengur á kvöldin og um helgar. Þessi þjónustuviðbót er hluti af markmiði okkar um að skapa umhverfisvænna samfélag enda fjölgar farþegum Strætó. Við viljum breyta því að Íslendingar séu „bílaþjóð” og fá alla um borð í strætó, þar er nóg pláss,” segir Skúli.

Það er auðvelt að sjá hvort fyrirtæki þitt er með samning með því að slá inn kennitölu þess inn hérna.
Þessi kynning er unnin í samstarfi við Strætó.