Ellefu hundruð hjá WOW air
Stærsta hópuppsögnin var hjá WOW air, sú umfangsmesta í manna minnum, en ellefu hundruð manns misstu vinnuna hjá flugfélaginu eftir að tilkynnt var að félagið hefði hætt starfsemi að fullu.Í kjölfarið var ákveðið að Vinnumálastofnun verði veitt 80 milljóna króna tímabundið framlag vegna gjaldþrotsins til að þjónusta þá sem misstu vinnuna. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 kom svo fram að mörg hundruð umsóknir um atvinnuleysisbætur hafi borist stofnuninni síðan í gærmorgun – fleiri en nokkurn tímann áður á svo stuttum tíma.
Áhrifa WOW gætir víða
Þá munaði einnig töluvert um uppsagnir 315 starfsmanna hjá Airport Associates á Keflavíkurflugvelli. Tilkynnt var um uppsagnirnar í dag en áður hafði legið fyrir að grípa þyrfti til uppsagna vegna gjaldþrots WOW Air.
Gray Line fylgdi svo í kjölfar kollega sinna hjá Kynnisferðum og tilkynnti um uppsögn þriggja starfsmanna í dag.
Í gær og í dag var sex starfsmönnum Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli sagt upp störfum. Þorgerður Þráinsdóttir framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar sagði í samtali við Vísi í kvöld að uppsagnirnar mætti rekja beint til gjaldþrots WOW þar sem félagið hefði flutt inn um 30 prósent viðskiptavina Fríhafnarinnar.

BYGG, Pipar og Síminn
Fjörutíu starfsmönnum var svo sagt upp hjá Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars, BYGG. Gylfi Ómar Héðinsson, einn eigenda fyrirtækisins, sagði í samtali við Vísi í dag að um væri að ræða 32 fasta starfsmenn og svo nokkra undirverktaka úr ýmsum stéttum iðnaðarmanna.Inntur eftir því hvort uppsagnirnar væru beintengdar falli flugfélagsins WOW air sagði Gylfi að um væri að ræða varúðarráðstöfun. Fyrir uppsagnir störfuðu alls 215 hjá BYGG.
Þá greindi RÚV frá því í dag að Origo hefði sagt upp tíu til fimmtán manns á þriðjudag og miðvikudag vegna skipulagsbreytinga.
Haft var eftir Finni Oddssyni forstjóra Origo að augljóslega hafi dregið úr umsvifum á ýmsum sviðum í atvinnulífinu og margt sé mótdrægt. Þar standi upp úr þær kröfur sem nú séu uppi í kjaradeilum á vinnumarkaðnum.

Í gær var greint frá skipulagsbreytingum hjá Lyfju sem fólu í sér að átta starfsmönnum var sagt upp. Tvö ný stöðugildi verða þó til vegna breytinganna.
Þá sagði Auglýsingastofan Pipar/TBWA upp fimm starfsmönnum í gær. Starfsmenn tóku auk þess á sig tíu prósenta launalækkun næstu sex mánuðina.
Líftæknifyrirtækið WuXi NextCode sagði svo upp 27 starfsmönnum þann 27. mars. Framkvæmdastjóri félagsins sagði þetta lið í endurskipulagningu fyrirtækisins á heimsvísu en um 40 manns munu starfa hjá NextCode eftir niðurskurðinn.
Sjá fram á fleiri uppsagnir
Ljóst er að a.m.k. 1500 manns hafa misst vinnuna síðustu sólahringa og þess má vænta að fleiri fylgi í kjölfarið. Áhrifafólk í ferðaþjónustunni hefur til að mynda margt lýst yfir áhyggjum af stöðu mála í kjölfar gjaldþrots WOW air. Þannig sagði Bjarnheiður Hallsdóttir formaður Samtaka ferðaþjónusunnar í samtali við Vísi í dag að ekki væri ólíklegt að til frekari uppsagna komi í greininni á næstunni.Ásberg Jónsson, framkvæmdastjóri Nordic Visitor, sagði jafnframt að höggið sem hljótist af falli flugfélagsins muni ýta mörgum ferðaþjónustufyrirtækjum í þrot.
Þá býst Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar við gífurlegu álagi á stofnunina næstu vikur vegna gjaldþrotsins.