Sigursteinn spilaði um 300 meistaraflokksleiki fyrir FH og var einnig í atvinnumennsku í Danmörku og Þýskalandi en hann hefur þjálfað eða verið í kringum þjálfun og afreksstarf FH í tvo áratugi.
Hann hefur þjálfað bæði U19 og U21 árs lið Íslands og var spilandi aðstoðarþjálfari hjá FH þegar að hinn margfrægi 89 og 90-árangar FH voru að koma upp með Aron Pálmarsson, Ólaf Gústafsson og Ólaf Guðmundsson sem sína helstu menn.
„Ég er búinn að vera lengi í þjálfun, meðal annars með góðum mönnum hjá HSÍ, þannig að auðvitað hefur þetta verið einhversstaðar í hausnum,“ segir Sigursteinn sem nú hellir sér út í meistaraflokksþjálfun sem aðalþjálfari í fyrsta sinn.

Halldór Jóhann Sigfússon hefur unnið frábært starf með FH-liðið undanfarin fimm ár en félagið hefur verið duglegt að finna alltaf næstu stjörnur. Það hefur, undir stjórn Halldórs, komist í lokaúrslitin undanfarin tvö ár og varð svo bikarmeistari á laugardaginn. Það verða því engar svakalegar breytingar hjá Sigursteini.
„Alls ekki. Það væri óðs manns æði að breyta of miklu hjá FH því hér hefur verið unnið gott starf síðustu ár. Ég vil bara nýta tækifærið og hrósa Halldóri fyrir algjörlega geggjað starf undanfarin fimm ár. Sú vinna endurspeglaðist í titli um síðustu helgi og því verkefni er ekki lokið,“ segir Sigursteinn.
„Ég verð ekki með neinar framúrstefnulegar breytingar að það er klárt mál að ég hef mínar hugmyndir um handbolta og bæti þeim ofan á þann góða leik sem spilaður er hér í dag. Svo kem ég bara sem annar karakter inn í þetta og með nýja rödd í klefann,“ segir hann.

Sigursteinn Arndal er eins mikill FH-ingur og menn verða en faðir hans, Helgi Ragnarsson, er goðsögn í lifanda lífi í Kaplakrika.
Ásgeir Jónsson, formaður handknattleiksdeildar FH, sagði á blaðamannafundinum í dag að Helgi og Sædís Arndal, móðir Sigursteins, skráðu hann í FH áður en hann fékk nafn og var því óskírður Helgason mættur sem félagsmaður í FH skömmu eftir fæðingu.
„Það er engin spurning að mitt hjarta slær í Kaplakrika og því mun ég leggja mikið upp úr því að ná góðum árangri og stefni að því,“ segir Sigursteinn Arndal.