Yfirvöld á Nýja-Sjálandi hafa ákært karlmann á þrítugsaldri fyrir morð eftir að í það minnsta einn árásarmaður skaut að minnsta kosti 49 manns til bana og særði hátt í fimmtíu til viðbótar í tveimur moskum í Christchurch á Nýja-Sjálandi í dag. Föstudagsbænir voru í gangi í moskunum.
Anning, sem situr í öldungadeild ástralska þingsins sem óháður þingmaður fyrir Queensland-ríki, byrjar yfirlýsinguna á því að fordæma gjörðir byssumannsins sem átti í hlut og segist algerlega mótfallinn hvers konar ofbeldi í sínu samfélagi. Fljótt kveður þó við heldur myrkari tón í yfirlýsingunni.
„Hins vegar, þó að aldrei sé hægt að réttlæta ofbeldisfullar aðgerðir sjálfskipaðra varða laganna, þá dregur þetta upp skýra mynd af vaxandi ótta í samfélagi okkar, bæði í Ástralíu og Nýja-Sjálandi, við stigvaxandi návist Múslima.“
Þingmaðurinn gefur lítið fyrir útskýringar „vinstri-stjórnmálamanna,“ eins og hann kemst sjálfur að orði, um að rekja megi ástæður árásarinnar til byssulöggjafar í landinu eða þeirra sem aðhyllist þjóðernishyggju. Slíkar skýringar séu í raun „klisjukennt kjaftæði.“
„Hin raunverulega ástæða blóðsúthellinga á götum Nýja-Sjálands í dag er innflytjendastefna sem gerði öfgamúslimum kleift að flytja til Nýja-Sjálands til að byrja með,“ segir í yfirlýsingunni, sem vakið hefur hörð viðbrögð.
„Höfum eitt á hreinu, þó að múslimar hafi í dag verið fórnarlömb, þá eru þeir venjulega gerendurnir. Um allan heim drepa múslimar fólk í stórum stíl, í nafni trúar sinnar.“
Hann segir þá Íslam vera „ofbeldisfulla hugmyndafræði sjöttu aldar harðstjóra í dulargervi trúarleiðtoga.“
Þingmaðurinn segir sannleikann vera þann að Íslam sé ólíkt öllum öðrum trúarbrögðum og leggur þessi næst fjölmennustu trúarbrögð heims að jöfnu við fasisma. Hann segir jafnframt að þó að „fylgjendur þessarar villimannslegu trúar hafi ekki verið morðingjar í þessu tilfelli, þá séu þeir ekki saklausir.“
Anning lýkur yfirlýsingunni með því að vitna í Nýja Testament Biblíunnar.
„Eins og stendur í Matteusarguðspjalli 26:52, „allir, sem sverði bregða, munu fyrir sverði falla,“ og þeir sem aðhyllast ofbeldisfull trúarbrögð sem kallar eftir morðum á okkur [öðrum en múslimum] geta ekki látið sér bregða um of þegar einhver tekur þá á orðinu og svarar í sömu mynt.“

Hörð viðbrögð úr ýmsum áttum
Viðbrögð við yfirlýsingu þingmannsins hafa ekki látið á sér standa og hefur hann mátt sæta harðri gagnrýni úr ýmsum áttum. Meðal þeirra sem lýst hafa vanþóknun sinni á orðum Anning er Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu.„Ummæli þingmannsins Fraser Anning þar sem hann kennir innflytjendastefnu um grimmilega árás ofbeldisfulls, öfga-hægri hryðjuverkamanns í Nýja-Sjálandi eru ógeðsleg. Slíkar skoðanir eiga ekki rétt á sér í Ástralíu, hvað þá á ástralska þinginu,“ tísti forsætisráðherrann.
The remarks by Senator Fraser Anning blaming the murderous attacks by a violent, right-wing, extremist terrorist in New Zealand on immigration are disgusting. Those views have no place in Australia, let alone the Australian Parliament.
— Scott Morrison (@ScottMorrisonMP) March 15, 2019
Innanríkisráðherra Bretlands, Sajid David, var einnig harðorður í garð þingmannsins.
„Á tímum sorgar og þegar hugleiðingar er þörf þá hellir þessi ástralski þingmaður olíu á eld ofbeldis og öfgahyggju,“ segir Sajid, sem sjálfur er múslimi, í tísti.
„Ástralir munu skammast sín gríðarlega fyrir þennan fordómafulla mann. Hann talar á engan hátt fyrir hönd áströlsku vina okkar.“
At a time for grieving and reflection, this Australian senator @fraser_anning fans the flames of violence & extremism. Australians will be utterly ashamed of this racist man. In no way does he represent our Australian friends https://t.co/uzezIeNjbN
— Sajid Javid (@sajidjavid) March 15, 2019
Malcolm Turnbull, fyrrum forsætisráðherra Ástralíu sagði þá ummæli Anning vera fyrirlitleg.
„Hann er svívirðing við ástralska þingið og, það sem verra er, með því að dreifa hatri og snúa Áströlum hvorum gegn öðrum, gerir hann nákvæmlega það sem hryðjuverkamennirnir vilja.“
Fraser Anning’s comments today are contemptible. He is a disgrace to the Senate and what is worse by spreading hatred and turning Australians against each other he is doing exactly what the terrorists want.
— Malcolm Turnbull (@TurnbullMalcolm) March 15, 2019