Íslandsmeistarar innanhúss krýndir í Kaplakrika um helgina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. febrúar 2019 17:45 Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir er einn besti spretthlaupari Íslands og er ein sú efnilegasta í Evrópu. Mynd/Frjálsíþróttasamband Íslands
Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum innanhúss fer fram um helgina en keppt verður bæði á laugardag og sunnudag í Kaplakrika. Fyrsta grein er 60 metra hlaup klukkan ellefu í fyrramálið. Fremsta frjálsíþróttafólk landsins verður mætt til leiks í Kaplakrika og mun það keppa um 24 Íslandsmeistaratitla í einstaklingsgreinum. Síðasta grein mótsins verður svo 4×400 metra boðhlaup þar sem spennan er yfirleitt mjög mikil. Alls eru 169 keppendur skráðir til leiks frá 14 félögum. Frjálsíþróttasamband Íslands hefur tekið saman flotta grein um keppni helgarinnar og má sjá hana hér fyrir neðan.Spennandi 60 metra hlaup Í 60 metra hlaupi kvenna eru Hafdís Sigurðardóttir, UFA og Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, ÍR líklegastar til þess að hreppa Íslandsmeistaratitilinn. Hafdísi er í góðu formi og gæti bætt sinn besta árgangur sem er 7,55 sekúndur. Guðbjörg Jóna hefur bætt sig í 60 metra hlaupi í vetur og á best 7,51 sekúndu. Íslandsmetið er 7,47 sekúndur og á Tiana Ósk Whitworth það frá því í fyrra. Ef Hafdís eða Guðbjörg Jóna hitta á gott hlaup þá gæti það met jafnvel fallið. Íslandsmeistari í fyrra var Dóróthea Jóhannesdóttir, FH og má búast við spennandi baráttu um að komast á pall milli hennar og Andreu Torfadóttur æfingafélaga hennar úr FH. Í 60 metra hlaupi karla vantar marga sterka hlaupara vegna meiðsla en samt sem áður má búast við skemmtilegu hlaupi. Líklegastur til sigurs eru Juan Ramon Borges, Breiðabliki sem bætti sig í vetur og hljóp á 7,03 sekúndum. Guðmundur Ágúst Thoroddsen, Aftureldingu og Ísak Óli Traustason, UMSS eru einnig líklegir. Ísak Óli hefur bætt sig í vetur og á best 7,10 sekúndur. Besti tími Guðmunds er 7,07 sekúndur frá því í fyrra. Mótið hefst á riðlakeppni í 60 metra hlaupi kvenna klukkan 11:00 á laugardeginum og í karlaflokki klukkan 11:30. Úrslitin eru svo sama dag klukkan 14:00 í kvennaflokki og 14:10 í karlaflokki.Nýjir Íslandsmeistarar í stangarstökki Í stangastökki karla eru þrettán keppendur skráðir til leiks og mjög erfitt er að spá fyrir um sigurvegara. Bestan árangur keppenda á Mark Wesley Johnson, ÍR og er hann sá eini sem hefur stokkið yfir 5 metra. Mark hefur ekki keppt mikið síðustu ár en dró þó skóna fram úr hillunni fyrir Bikarkeppni FRÍ síðasta sumar þar sem hann sigraði með stökk upp á 4,60 metra. Næstbestan árangur á Guðmundur Karl Úlfarsson, Ármanni. Guðmundur Karl hefur ekki keppt í stangarstökki í vetur en hann á best 4,75 metra frá því 2017. Bogi Eggertsson, FH hefur æft vel í vetur og er í hörku formi. Hann gæti því komið á óvart og náð fram góðri bætingu. Besti árangur hans er 4,40 metrar. Einnig koma Ísak Óli Traustason, UMSS, Andri Fannar Gíslason, KFA, Benjamín Jóhann Johnsen, ÍR, Ari Sigþór Eiríksson, Breiðabliki og Gunnar Eyjólfsson, UFA til greina. Í stangarstökki kvenna á Bogey Ragnheiður Leósdóttir, FH bestan árangur meðal keppenda. Hún hefur stokkið hæst 3,85 metra. Þar á eftir eru Rakel Ósk Dýrfjörð Björnsdóttir, KFA sem á 3,43 metra og Stella Dögg Eiríksdóttir Blöndal, ÍR sem á 3,40 metra. Stangarstökk karla hefst klukkan 12:00 á laugardeginum og stangarstökk kvenna klukkan 12:30 á sunnudeginum.Þrjár yfir 1,7 metrum í hástökki Þrjár stelpur eiga yfir 1,7 metra í hástökki og búast má við mikilli samkeppni milli þeirra þriggja um Íslandsmeistaratitilinn. María Rún Gunnlaugsdóttir, FH á bestan árangur eða 1,75 metra. Hún stökk þá hæð á Norðurlandamótinu innanhúss fyrir tveim vikum. María varð Íslandsmeistari í fyrra og gæti vel varið þann titill í ár og jafnvel bætt sig enn frekar. Kristín Lív Svabo Jónsdóttir, ÍR er einnig meðal keppenda en hún hefur ekki keppt í hástökki síðan 2017 vegna meiðsla. Kristín á best 1,70 metra. Einnig er Helga Þóra Sigurjónsdóttir, Fjölni, líkleg til sigurs um helgina. Helga er aðeins 18 ára gömul og því ung og efnileg. Besti árangur hennar er 1,73 metrar. Í hástökki karla eru tveir strákar sem hafa stökkið yfir 2 metra. Það eru Krisján Viggó Sigfinnsson, Ármanni og Benjamín Jóhann Johnsen, ÍR. Kristján varð Íslandsmeistari í fyrra og á best 2,01 metra. Benjamín á einum sentimeter lægra eða 2,00 metra. Hástökk kvenna hefst klukkan 12:00 á laugardaginn og hástökk karla klukkan 13:30 á sunnudaginn.EM fari í langstökki Ein sterkasta greinin á mótinu í ár er langstökk kvenna. Áhorfendum býðst tækifæri til þess að sjá Hafdísi Sigurðardóttir, UFA keppa um helgina áður en hún fer til Skotlands á EM innanhúss sem fer fram næstu helgi. Íslandsmet Hafdísar er 6,54 metrar og hefur hún tvisvar stokkið 6,49 metra í ár. Hún er í 20. sæti Evrópulistans í langstökki í ár og með góðu stökki gæti hún fært sig upp listann og jafnvel bætt eigið Íslandsmet. Í langstökki karla á Kristinn Torfason, FH bestan árangur. Kristinn hefur verið ein besti langstökkvari Íslands síðastliðin 10 ár og er margfaldur Íslandsmeistari. Hann hefur stokkið lengst 7,14 metra í ár en á best 7,77 metra. Ísak Óli Traustason, UMSS og Einar Daði Lárusson, ÍR eiga einnig yfir 7 metra og gætu veit Kristin góða samkeppni. Langstökkið fer fram á sunnudeginum og hefst forkeppninklukkan 10 hjá körlunum og 11 hjá konunum. Úrslitin í karlaflokki fara fram 12:45 og í kvennaflokki 14:10.Framtíðarstjörnur í 200 metrum og 400 metrum Í 400 metra hlaupi karla eru FH-ingarnir Kormákur Ari Hafliðason og Hinrik Snær Steinsson líklegastir til sigurs. Þeir hafa báðir bætt sig mikið í vetur en Kormákur á betri tíma. Kormákur keppti í 400m á NM innanhúss fyrir tveim vikum þar sem hann hljóp á sínum besta tíma, 48,55 sekúndum. Hinrik á best 50,05 frá því á RIG fyrr í vetur. Þeir eru því báðir í bætingarformi og gætu bætt sig enn frekar og Hinrik orðið 20. íslenski karlinn frá upphafi til að hlaupa undir 50 sekúndum. Þeir munu svo báðir einnig keppa í 200 metra hlaupi ásamt Arnaldi Þór Guðmundssyni sem keppir einnig fyrir FH. Þeir þrír skipa sterkasta riðilinn í 200 metra hlaupinu og allir með glænýjar bætingar. Kormákur á 22,23 sekúndur, Hinrik, 22,26 sekúndur og Arnaldur 22,53 sekúndur. 400 metra hlaup karla fer hefst klukkan 14:25 á laugardeginum og 200 metra hlaupið er á sunnudeginum klukkan 12:50. Sterkasta riðilinn í 400 metra hlaupi kvenna skipa Glódís Edda Þuríðardóttir, KFA, Þórdís Eva Steinsdóttir, FH og Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, ÍR. Þórdís Eva keppti í 400 metra hlaupi á NM innahúss fyrir tveim vikum og Guðbjörg Jóna í 200 metra hlaupi á sama móti. Þær hafa báðar verið að standa sig mjög vel í vetur og er erfitt að spá fyrir um sigurvegara um helgina. Þórdís Eva á betri tíma eða 54,80 sekúndur en Guðbjörg Jóna 55,04.Guðbjörg Jóna og Glódís Edda Þessar þrjár munu einnig mætast á sunnudeginum í 200 metra hlaupi. Þar er Guðbjörg Jóna sigurstranglegust og gæti hún jafnvel ógnað Íslandsmeti Silju Úlfarsdóttur frá árinu 2004 sem er 23,79 sekúndur. Guðbjörg á best 24,05 sekúndur frá því á MÍ 15-22 ára í janúar. Þórdís Eva og Glódís Edda hafa einnig bætt sig í vetur. Þórdís á 24,59 sekúndur og Glódís 25,05 sekúndur. Þær eru allar ungar og efnilegar og á mikilli uppleið og vonandi sjáum við bætingar frá þeim öllum núna um helgina. 400 metra hlaup kvenna hefst klukkan 15:10 á laugardeginum og 200 metra hlaupið er á sunnudeginum klukkan 12:00.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Vann gull og frétti svo af andláti ömmu sinnar: „Lofaði henni að ég yrði hugrökk“ Sport Hetjan missti tönn: „Ég elska Bandaríkin“ Sport Segir að Grindvíkingar verði að passa vel upp á gömlu kallana Körfubolti Arteta klár í baráttuna: „Tíu leikir í ensku úrvalsdeildinni eru maraþon“ Enski boltinn Var rekinn en hefndi sín: „Hefði verið búið að berja hann í spað“ Körfubolti Elías hélt hreinu í þriðja sinn í síðustu fimm leikjum Fótbolti Dramatískt flautumark tryggði Liverpool mikilvægan sigur Enski boltinn Búin í aðgerð og ber sig vel eftir að hafa fengið skauta í augað Sport Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Íslenski boltinn Fyrsta íshokkígull Bandaríkjanna frá Kraftaverkinu 1980 Sport Fleiri fréttir Hetjan missti tönn: „Ég elska Bandaríkin“ Segir að Grindvíkingar verði að passa vel upp á gömlu kallana Vann gull og frétti svo af andláti ömmu sinnar: „Lofaði henni að ég yrði hugrökk“ Elías hélt hreinu í þriðja sinn í síðustu fimm leikjum Arteta klár í baráttuna: „Tíu leikir í ensku úrvalsdeildinni eru maraþon“ Fyrsti deildarsigur Lille í rúma tvo mánuði Fyrsta íshokkígull Bandaríkjanna frá Kraftaverkinu 1980 Fiorentina vann aftur með Hlín í byrjunarliðinu Eze aftur í aðalhlutverki gegn Tottenham og Arsenal með fimm stiga forskot Ágúst Ingi sjötti á tvíslá á heimsbikarmóti Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Glódís og stöllur unnu toppslaginn og eru með fjórtán stiga forskot Barcelona nýtti sér mistök Real Madrid og skaust á toppinn KA hafði betur gegn ÍBV í spennutrylli á Akureyri Sverrir Ingi leiddi sitt lið til sigurs Fagnaði fyrir framan sótilla stuðningsmenn Dramatískt flautumark tryggði Liverpool mikilvægan sigur Auðvelt hjá Magdeburg og Íslendingar áberandi Alfons stóð vaktina frábærlega í stórsigri Benedikt ekki brotinn en frá næstu vikurnar Kristian Nökkvi hetja Twente Íslensk markaveisla í sigri Kristianstad Mikael Egill og Messías stóðu fyrir sínu í sigri Furðufréttir Vetrarólympíuleikanna: Framhjáhald, stóra typpamálið og skemmdar medalíur Var rekinn en hefndi sín: „Hefði verið búið að berja hann í spað“ Kokteilar á línuna: Guardiola vill að sínir menn drekki vel og njóti „Mín mistök að hafa ekki komið Bjögga betur inn í mótið“ Mörkin úr enska boltanum: Eitt flottasta mark tímabilsins, dramatík og dýrmætur sigur City Þegar allir og amma þeirra fóru í EM-veisluna Missti tilfinninguna í fingrunum eftir bræðiskastið á HM Sjá meira