Frakkar skoruðu sex fyrstu mörkin í leiknum og íslenska liðið skoraði ekki sitt fyrsta mark fyrr en eftir rúmar tólf mínútur. Þrjú af sex fyrstu mörkum franska liðsins komu yfir allan völlinn og í stöðunni 6-0 var franski markvörðurinn Vincent Gérard búin að verja öll skot íslenska liðsins og var að auki markahæstur á vellinum með tvö mörk.
Þetta var allt of djúp hola fyrir ungt íslenskt lið sem var búið að missa tvo bestu menn liðsins í meiðsli eða þá Aron Pálmarsson og Arnór Þór Gunnarsson.
Íslensku strákarnir náðu muninum aftur niður í tvö mörk í byrjun seinni hálfleik en þá gáfu Frakkar aftur í og unnu að lokum mjög öruggan sigur.
Elvar Örn Jónsson tók við ábyrgðarhlutverkinu af Aroni Pálmarssyni að taka af skarið í sókninni og kom að níu íslensku mörkum.
Stærsta hluta leiksins voru mjög ungir leikmenn í aðalhlutverki hjá íslenska liðinu og Haukur Þrastarson skoraði tvö mörk í frumraun sinni á stórmóti. Hann var bæði yngsti leikmaðurinn til að spila og skora á þessu HM.
Ágúst Elí Björgvinsson varði 9 skot í fyrri hálfleiknum en íslensku markverðirnir vörðu aðeins tvö skot samtals allan seinni hálfleikinn. Frönsku markverðirnir vörðu átta fleiri skot í seinni hálfleiknum.
Vísir fylgist vel með tölfræði íslenska liðsins á mótinu og hefur nú tekið saman þá leikmenn sem sköruðu fram úr í tölunum í þessum sjöunda leik Íslands á mótinu.
Hér fyrir neðan má sjá toppa íslenska liðsins í tölfræðinni.
- Íslensku landsliðsmennirnir á móti Frakklandi á HM 2019 -
Hver skoraði mest
1. Elvar Örn Jónsson 5
2. Sigvaldi Guðjónsson 4
3. Teitur Örn Einarsson 3
4. Bjarki Már Elísson 2
4. Ýmir Örn Gíslason 2
4. Ólafur Guðmundsson 2
4. Arnar Freyr Arnarsson 2
4. Haukur Þrastarson 2
Hver varði flest skot:
1. Ágúst Elí Björgvinsson 10 (31%)
2. Björgvin Páll Gústavsson 1 (10%)
Hver spilaði mest í leiknum
1. Bjarki Már Elísson 60:00
1. Sigvaldi Guðjónsson 60:00
3. Elvar Örn Jónsson 49:49
4. Ágúst Elí Björgvinsson 39:05
5. Arnar Freyr Arnarsson 38:54
6. Ólafur Guðmundsson 34:37
7. Teitur Örn Einarsson 25:08
8. Ýmir Örn Gíslason 22:42
Hver skaut oftast á markið
1. Elvar Örn Jónsson 8
1. Teitur Örn Einarsson 8
3. Ólafur Guðmundsson 7
4. Sigvaldi Guðjónsson 6
5. Haukur Þrastarson 4
6. Bjarki Már Elísson 3
6. Ómar Ingi Magnússon 3
6. Arnar Freyr Arnarsson 3
Hver gaf flestar stoðsendingar
1. Elvar Örn Jónsson 4
2. Ólafur Guðmundsson 2
2. Teitur Örn Einarsson 2
4. Björgvin Páll Gústavsson 1
4. Ómar Ingi Magnússon 1
4. Sigvaldi Guðjónsson 1
Hver átti þátt í flestum mörkum (Mörk + stoðsendingar)
1. Elvar Örn Jónsson 9 (5+4)
2. Sigvaldi Guðjónsson 5 (4+1)
2. Teitur Örn Einarsson 5 (3+2)
4. Ólafur Guðmundsson 4 (2+2)
5. Bjarki Már Elísson 2 (2+0)
5. Ýmir Örn Gíslason 2 (2+0)
5. Arnar Freyr Arnarsson 2 (2+0)
5. Haukur Þrastarson 2 (2+0)
Hver stoppaði oftast í vörninni (HB Statz)
1. Ólafur Gústafsson 7
2. Ólafur Guðmundsson 6
3. Elvar Örn Jónsson 5
4. Haukur Þrastarson 3
4. Arnar Freyr Arnarsson 3
6. Bjarki Már Elísson 2
Hver tapaði boltanum oftast
1. Elvar Örn Jónsson 4
2. Ólafur Guðmundsson 3
3. Haukur Þrastarson 2
Hver vann boltann oftast:
1. Bjarki Már Elísson 1
1. Ólafur Guðmundsson 1
1. Ólafur Gústafsson 1
1. Haukur Þrastarson 1
Hver fiskaði flest víti:
1. Elvar Örn Jónsson 1
Hver fiskaði flestar brottvísanir:
1. Elvar Örn Jónsson 2
2. Ómar Ingi Magnússon 1
2. Arnar Freyr Arnarsson 1
2. Haukur Þrastarson 1
Hæsta einkunn íslensku leikmannanna í sókn (HB Statz):
1. Elvar Örn Jónsson 7,9
2. Sigvaldi Guðjónsson 7,2
3. Teitur Örn Einarsson 6,3
4. Bjarki Már Elísson 6,1
5. Arnar Freyr Arnarsson 6,1
Hæsta einkunn íslensku leikmannanna í vörn (HB Statz):
1. Ólafur Guðmundsson 8,6
2. Ólafur Gústafsson 8,0
3. Elvar Örn Jónsson 7,1
4. Bjarki Már Elísson 6,9
5. Haukur Þrastarson 6,8

9 með langskotum
6 af línu
4 úr hraðaupphlaupum (9 með seinni bylgju)
2 með gegnumbrotum
1 úr hægra horni
0 úr vítum
0 úr vinstra horni
- Plús & mínus kladdinn í leiknum -
Mörk með langskotum: Ísland +5 (9-4)
Mörk af línu: Ísland +3 (6-3)
Mörk úr hraðaupphlaupum: Ísland +1 (9-8)
Tapaðir boltar: Ísland +7 (12-5)
Fiskuð víti: Ísland +1 (1-0)
Varin skot markvarða: Frakkland +7 (18-11)
Varin víti markvarða: Frakkland +1 (1-0)
Misheppnuð skot: Ísland +3 (22-19)
Löglegar stöðvanir: Ísland +13 (30-17)
Refsimínútur: Frakkland +6 mín. (10-4)
- Góðu og slæmu kaflarnir í leiknum -
Fyrri hálfleikurinn: Frakkland +4 (15-11)
1. til 10. mínúta: Frakkland +4 (4-0)
11. til 20. mínúta: Frakkland +1 (6-5)
21. til 30. mínúta: Ísland +1 (6-5)
Seinni hálfleikurinn: Frakkland +5 (16-11)
31. til 40. mínúta: Frakkland +3 (6-3)
41. til 50. mínúta: Ísland +1 (4-3)
51. til 60. mínúta: Frakkland +3 (7-4)
Byrjun hálfleikja: Frakkland +7 (10-3)
Lok hálfleikja: Frakkland +2 (12-10)