Sannleikurinn um elstu konuna Þorbjörg Gunnlaugsdóttir skrifar 17. janúar 2019 07:00 Ég las frétt um elstu konu í heimi um daginn. Reyndar fæ ég stundum á tilfinninguna að elstu konur heims séu fleiri en ein miðað við hversu oft þær birtast fjölmiðlum með heilræði og skýringar á langlífinu. Sannleikurinn að baki lífsgaldrinum er yfirleitt alltaf einhver einn. Oftast hefur mér fundist ástæðan vera sú að elsta kona í heimi hefur aldrei litið á karlmann en leyft sér huggulegt staup á kvöldin. Janúar er hálfnaður og ég tóri enn í lífsfræðunum. Það er í sjálfu sér gríðargóður persónulegur árangur. Við gætum verið að horfa á met. Þetta er sterkt ár hvað varðar aðgengi að 10 atriða listum um árangur og hamingju. Spurningin er bara hvaða skóla á að fylgja. Ég hef verið dálítið skotin í hugmyndafræðinni um að reyna ekki að hugsa fyrr en eftir fyrsta kaffibolla. Og að halda kaffiflæðinu svo gangandi. Aðrir boða að fylgja eigin sannfæringu. Enn aðrir mikilvægi þess að hlusta. Muna að drekka vatn. Upplifa náttúruna. Fara að sofa. Hreyfa sig. Njóta fjölskyldustunda. Leyfa sér að blómstra í starfi. Skoða heiminn. Borða túrmerik. Vera til staðar. Taka afstöðu. Ekki dæma. Leggja fyrir. Njóta. Hugleiða og brosa. Hætta svo að afsaka sig. Vera þakklát. Ekki kaupa tilbúinn mat. Baka brauð (samt ekki borða það). Og vera svo besta útgáfan af sjálfri þér. En ekki að stressa sig, því þú ert nóg. Eftir að hafa lesið fréttir um svarið að baki langlífi elstu kvenna heims held ég að það gæti verið skemmtilegt að eiga vandaða kvöldstund með heimsmeistaraklúbbi aldraðra kvenna og sötra með þeim púrtvín. Púrtvín er gott og fínt. Síðan mun sannleikurinn og galdurinn sem fylgir janúarmánuði að mestu líða hjá fyrir mánaðamót og við endurheimtum lífið. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir Skoðun
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun