Jafntefli dugar íslenska liðinu í dag Kristinn Páll Teitsson skrifar 17. janúar 2019 06:30 Akureyringurinn Arnór Þór Gunnarsson var markahæstur í íslenska liðinu ásamt Stefáni Rafni Sigurmannssyni í leiknum gegn Japan. Fréttablaðið/afp
Það verða hreinir úrslitaleikir í öllum þremur leikjunum í B-riðli sem Ísland er í á Heimsmeistaramótinu í handbolta í dag. Fyrir lokaumferðina eru Króatía og Spánn með fullt hús stiga og mætast þau í kvöld í leik um efsta sætið og um leið að fara með fullt hús stiga í milliriðlana. Íslensku þjálfararnir Aron Kristjánsson og Dagur Sigurðsson leiða saman hesta sína í fyrsta leik dagsins þar sem fimmta sæti riðilsins verður í boði en augu Íslendinga verða á leik Íslands og Makedóníu í Ólympíuhöllinni í München í dag. Eftir torsóttan sigur Íslands á Japan í gær og tap Makedóníu gegn Spáni eru liðin jöfn að stigum. Bæði hafa unnið tvo leiki og tapað tveimur fyrir leikinn en Ísland er í vænlegri stöðu. Stórsigur Íslands gegn Barein á mánudaginn gerir það að verkum að íslenska liðið er með mun betri markatölu en Makedónía fyrir leik liðanna síðar í dag sem þýðir að Íslandi dugar jafntefli í kvöld. Makedónía vann níu marka sigur á Japan í fyrsta leik liðanna á HM og fylgdi því eftir með fimm marka sigri á Barein en eftir tapleiki gegn Spáni og Króatíu er markatala þeirra sex mörk í mínus á meðan Ísland er með ellefu mörk í plús. Þetta verður sextánda viðureign Íslands og Makedóníu og hefur Ísland átt góðu gengi að fagna gegn andstæðingum dagsins. Í fimmtán leikjum hefur Ísland unnið ellefu sinnum, Makedónía þrisvar og einu sinni skildu liðin jöfn, á síðasta HM sem fór fram í Frakklandi.
Birtist í Fréttablaðinu HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Sjá meira