Íslenska karlalandsliðið í handbolta er komið í milliriðil eftir torsóttan tveggja marka sigur á Makedóníu í lokaleik riðlakeppninnar í München í dag.
Arnór Þór Gunnarsson skoraði fyrsta mark leiksins, hans fyrsta af 10 í leiknum, en svo átti Makedónía næstu fjögur mörk í leiknum. Sóknarleikurinn í fyrri hálfleik gekk mjög illa og þegar Ísland hafði skorað fjögur mörk voru þrjú þeirra úr skotum yfir allan völlinn.
Varnarleikurinn stóð þó ágætlega í fyrri hálfleik en uppstilltur sóknarleikur var ekki góður. Þegar flautað var til hálfleiks var staðan 13-11.
Guðmundur Guðmundsson hefur lagt upp með að þétta varnarleikinn enn frekar í hálfleiksræðu sinni en varnarleikurinn í seinni hálfleik var frábær.
Gísli Þorgeir Kristjánsson átti frábæra innkomu í leikinn og hristi vel upp í sóknarleiknum, íslenska liðið fór að sækja á markið og sækja víti. Ísland komst í fyrsta skipti yfir síðan í stöðunni 1-0 á 44. mínútu þegar Arnar Freyr Arnarsson skoraði og kom Íslandi í 17-16.
Leikurinn var í járnum út seinni hálfleikinn en íslenska liðið var skrefinu framar og kláraði leikinn að lokum með tveimur mörkum, 22-24.
Ísland fer því í milliriðil en Makedónía situr eftir. Í milliriðli mætum við Frakklandi, Þýskalandi og Brasilíu en ekki liggur fyrir hvenær eða við hvern næsti leikur er.
Nánari umfjöllun, viðtöl við landsliðsmenn og fleira kemur inn á Vísi í kvöld.
Leik lokið: Makedónía - Ísland 22-24 | Ísland fer í milliriðil

Tengdar fréttir

Guðmundur: Hafði ekki húmor fyrir öllu sem að gerðist þarna
Guðmundur Guðmundsson vill að menn vandi sig þegar að reynt er að kasta boltanum yfir allan völlinn.

Strákarnir fá „tossamiða“ eftir leiki
Íslensku landsiðsmennirnir geta ekki klikkað á viðtölum því allt er skrifað niður fyrir þá.

Þetta vitum við um landslið Makedóníu sem mætir Íslandi á HM í dag
Vísir skorað mótherja íslenska landsliðsins en Makedónía getur komið í veg fyrir að strákarnir okkar komist í milliriðil.

Endurtekið efni frá HM 2017
Strákarnir okkar eru í nákvæmlega sömu sporum í dag og þeir voru á HM í Frakklandi 2017. Það er eiginlega með ólíkindum að nákvæmlega sama staða sé komin upp.