Leik lokið: Ísland - Frakkland 22-31 | Heimsmeistararnir of stórir fyrir strákana Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 20. janúar 2019 21:00 Elvar Örn Jónsson fór mikinn í íslenska liðinu í dag vísir/epa Ísland tapaði með níu mörkum fyrir heimsmeisturum Frakka í milliriðli á HM í Þýskalandi og Danmörku. Lykil sóknarmenn Íslands, Aron Pálmarsson og Arnór Þór Gunnarsson, voru ekki með í dag vegna meiðsla og það sást. Íslenska liðið skoraði ekki mark fyrr en eftir 12 mínútur og 22 sekúndur. Á þeim tíma komst Frakkland hins vegar aðeins í 6-0 þar sem Ágúst Elí Björgvinsson kom sterkur inn í íslenska markið og varði vel í fyrri hálfleik. Eftir að Elvar Örn Jónsson skoraði fyrsta mark Íslands fóru hlutirnir að gerast og náði íslenska liðið að laga stöðuna, það munaði fjórum mörkum í hálfleik 11-15. Kaflinn frá því íslenska liðið byrjaði að skora og til loka fyrri hálfleiks fór hins vegar 11-9 fyrir Íslandi svo frammistaðan á þeim kafla var mjög góð. Íslensku strákarnir byrjuðu seinni hálfleikinn vel og minnkuðu muninn í tvö mörk, 14-16. Þá fór hins vegar að halla undan fæti. Á að því virtist augnabliki var Frakkland búið að setja fjögur mörk í röð. Guðmundur Guðmundsson tók leikhlé en það hafði ekki sín áhrif og Frakkar skoruðu næstu tvö mörk, staðan orðin 14-22. Þá var orðið ljóst að Frakkar færu með sigurinn, það er nær ómögulegt að vinna upp sjö marka mun gegn heimsmeisturunum á rúmu korteri. Strákarnir fóru þó að skora mörk að nýju, en þeir náðu aldrei neinu áhlaupi að ráði. Þegar yfir lauk var staðan 22-31 og öruggur sigur Frakka í hús. Nánari umfjöllun, viðtöl við landsliðsmenn, einkunnir og fleira kemur á Vísi seinna í kvöld. HM 2019 í Frakklandi
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti