Maður drepinn í Vísindakirkjunni í Ástralíu Kjartan Kjartansson skrifar 3. janúar 2019 08:36 Lögreglan á vettvangi við höfuðstöðvar Vísindakirkjunnar í norðurhluta Sydney. Vísir/EPA
Sextán ára gamall drengur hefur verið handtekinn, grunaður um að hafa stungið mann til bana og sært annan í húsakynnum Vísindakirkjunnar í Sydney í Ástralíu í dag. Lögreglan segir að þeir sem urðu fyrir árásinni hafi báðir verið starfsmenn kirkjunnar. Maðurinn sem lést var 24 ára gamall Taívani. Árásin er sögð hafa átt sér stað í innkeyrslu höfuðstöðva safnaðarins eftir að drengurinn var beðinn um að hafa sig á brott um klukkan 12:30 að staðartíma. Tilkynnt hafði verið um heimilisófrið þar í gær, að sögn breska ríkisútvarpsins. Þegar lögreglumenn komu á staðinn sleppti drengurinn 25 sentímetra löngum hníf sem hann hafði notað til að ráðast á mennina tvo. Lögreglan segir að drengurinn hafi haft „lögmæta ástæðu“ til að vera á svæðinu. Starfsfólkið hafði beðið hann um að fara vegna uppákomunnar daginn áður. Miðstöð Vísindakirkjunnar í Sydney er sú stærsta á vegum hennar utan Bandaríkjanna.
Ástralía Eyjaálfa Taívan Trúmál Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Vučić játar ósigur Erlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira