Barcelona fer með þriggja stiga forskot í jólafríið á Spáni eftir 2-0 sigur á Celta Vigo í síðustu umferðinni fyrir jól.
Börsungar kláruðu leikinn í fyrri hálfleik. Ousmane Dembele skoraði á tíundu mínútu og á síðustu mínútu fyrri hálfleiks tvöfaldaði Lionel Messi forystuna.
Fleiri urðu mörkin ekki og Barcelona er því á toppnum með 37 stig er spænska deildin fer í jólafrí. Í öðru sætinu er Atletico Madrid með 34 stig eftir 1-0 sigur á Espanyol í dag.
Grannarnir í Real Madrid eru í fjórða sætinu með 29 stig en þeir eiga þó leik til góða eftir að hafa verið að spila á HM félagsliða í dag.
Celta Vigo er í tíunda sæti deildarinnar.

