Ný handbók um sérsniðin skotfæri komin út Böðvar Bjarki Þorsteinsson kynnir 17. desember 2018 10:30 "Eins og titill bókarinnar vísar til, fjallar hún um hleðslu skotfæra, notkun og virkni. Með því er átt við hvernig skotfæri fyrir skotvopn, einkum riffla til veiða, eru hand- eða endurhlaðin af notandanum sjálfum. Nordic photos getty „
Bókin er fyrst og fremst hugsuð fyrir skotáhugafólk, bæði skotveiði- og skotíþróttafólk,“ segir Böðvar Bjarki Þorsteinsson, höfundur bókarinnar Eins og skot. Bókin fjallar um hleðslu skotfæra, notkun þeirra og virkni en Böðvar segir áhuga á skotveiði og skotvopnum hafa aukist mjög undanfarin ár.„Margir vilja kynna sér eða læra þessa hluti og fræðast fyllilega um skotfærin og virkni þeirra, hvað er rétt og hvað rangt, hvað má og hvað ekki. Við Steingrímur Steinþórsson útgefandi í Skruddu, vorum sammála um að við værum jafnvel að fara inn á „heitt" eða viðkvæmt svið en margir eru haldnir ákveðnum fordómum í garð skotfæra, skotvopna og veiðiskapar. Við komumst þó fljótt að því að heilmikill áhugi var fyrir bókinni. Sífellt bætist í hóp þeirra sem stunda þetta hugðarefni og bókin er hugsuð jafnt fyrir vana sem óvana.“ Fjöldi teikninga og skýringarmynda eru í bókinni en þær eru allar unnar eða teiknaðar af Böðvari sjálfum. Hann segir kúnstina við að handhlaða patrónur sport út af fyrir sig. „Eins og titill bókarinnar vísar til, fjallar hún um hleðslu skotfæra, notkun og virkni. Með því er átt við hvernig skotfæri fyrir skotvopn, einkum riffla til veiða, eru hand- eða endurhlaðin af notandanum sjálfum og þannig útbúin til notkunar í stað verksmiðjuhlaðinna skotfæra. Notandinn hleður patrónur sínar púðri, hvellhettu og kúlu eftir að þær hafa verið notaðar en einnig handhlaða menn sín eigin skotfæri frá grunni með því að notast við ný og ónotuð hylki. Allt er þetta sérstök kúnst en hugsunin ekki óskyld því þegar stangveiðimenn hnýta sínar eigin veiðiflugur. Þannig fá menn sérsniðin skotfæri fyrir sinn smekk og spara jafnvel fjármuni í leiðinni. Hjá mörgu skotfólki verður þetta nánast sport út af fyrir sig, hvort sem um ræðir til markskotfimi eða veiðiskapar. Ég hafði stundað þetta áhugamál í fjölda ára samhliða skotmennskunni en hjá mér hefur einkum verið um veiðiskap að ræða,“ segir Böðvar sem unnið hefur að bókinni um langa hríð.Böðvar Bjarki Þorsteinsson, höfundur bókarinnar Eins og skot.„Mér reiknast til að það séu um það bil 15 ár frá því ég hóf þessa vinnu en margir urðu til þess að annað hvort hvetja mig til dáða eða hreinlega sparka mér áfram. Upphaflega var einungis meiningin að setja á blað eitthvað fyrir sjálfan mig. Síðan vatt þetta smátt og smátt upp á sig. Sambærilegt efni hafði heldur aldrei fengið umfjöllun á íslensku enda þótt bækur um skotvopn og veiðiskap hafi verið gefnar út.“Þessi kynning er unnin í samstarfi við höfund bókarinnar
Bókmenntir Mest lesið „Nei, við mælum þetta krabbamein í mánuðum“ Lífið Hvað er eðlilegt að stunda kynlíf oft í mánuði? Lífið Var mjög heit fyrir lýtalækninum Lífið Eiður Smári og Halla Vilhjálms í skíðaævintýri Lífið „Samband okkar hefur alltaf verið flókið“ Lífið Stórmyndir í útrýmingarhættu Lífið Flytur ekki inn í lúxusíbúðina Lífið Sturla elti Tinder-ástina til paradísarstrandar í Mexíkó Lífið Ævintýrapar selur fallega fyrstu eign Lífið Dusta rykið af danssokkunum Tónlist Fleiri fréttir Gæðadýnur á frábæru verði! Heilsan væri ekki sú sama án mjólkursýrugerlanna frá Probi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Hlýleg stemming og einstök matarupplifun Úrval Útsýn færir landsmönnum sól og gleði í 70 ár Lada Sport okkar tíma Skráning hafin í Íslandsmeistaramótið í Ólsen ólsen Frumsýning nálgast og Minecraft og Oreo bregða á leik Eldabuskan græjar þriðju vaktina Wok to Walk opnar þrjá staði þar sem áður var Wok On Konudagsleikur - taktu þátt í skemmtilegri hefð Sýning sem breytir upplifun okkar á heiminum „Við ætlum okkur að finna fyndnasta hlátur Íslands“ Wolt og Blush með ástföngnum í liði á Valentínusardaginn „Við höfum það fyrir sið að faðmast í að lágmarki sjö sekúndur á hverjum morgni“ Almenningur eigi rétt á frjálsri för um óræktað land Óþægindi frá álagsmeiðslum minnkuð til muna með tilkomu Nutrilenk Stefnan sett á Ólympíuleikana 2028 „Í þessu jarðneska lífsbraski er G-vítamínið bráðnauðsynlegt“ Finnur þú fyrir uppþembu eða óþægindum eftir mat? „Mögulega besti tengiltvinnbíl sem framleiddur hefur verið“ Gerðu frábær kaup á húsgagnadögum JYSK NIVEA kynnir fyrstu hreinsivöruna með 5% serum Sjá meira