Gerði pakkaþjófum óleik með glimmer og prumpulykt Samúel Karl Ólason skrifar 18. desember 2018 20:44 Pakkaþjófur opnaði gildruna í bíl sínum.
Verkfræðingurinn Mark Rober varð reiður þegar þjófar stálu pakka frá heimili hans. Lögreglan sagðist ekkert geta gert þó hann væri með upptöku af parinu sem stal af honum. Því ákvað hann að leggja gildru fyrir þjófana en fyrst þurfti hann að hanna og búa slíka gildru til. Þar kom ferill Rober sér vel, því hann vann hjá NASA og hannaði búnað sem er um borð í Curiosity, vélmenni NASA á Mars. Rober hefur sömuleiðis hannað ýmislegt annað og hefur getið sér gott orð á Youtube, þar sem hann deildi myndbandi af þróun gildrunnar og því þegar þjófar féll í gildruna. Hann útbjó kassa með hreyfiskynjara, símum til að taka upp myndbönd, glimmersprengju og prumpuspreyi. Prumpuspreyinu var ætlað að tryggja að þjófarnir hentu kassanum svo Rober gæti sótt hann aftur, því auðvitað var einnig staðsetningartæki í honum. Pakkinn spreyjar prumpulykt með nokkurra sekúndna millibili. Gildran heppnaðist svo vel að nágranni Rober fékk hana lánaða og skildi hana eftir fyrir utan heima hjá sér og viti menn, hún virkaði aftur og aftur og aftur. Fjölmargir pakkaþjófar virðast hafa fallið í gildruna. Afraksturinn má sjá hér að neðan.Þjófnaður sem þessi, þar sem þjófar stela pökkum af lóðum fólks, verða sífellt algengari í Bandaríkjunum með tíðari heimsendingaþjónustu eins og til dæmis Amazon býður upp á. BBC segir Amazon vera að vinna með lögreglu í Bandaríkjunum til að sporna gegn þjófnaði og þá sérstaklega í New Jersey. Lögregluþjónar hafa komið gervipökkum fyrir víða sem innihalda staðsetningarbúnað og myndavélum til að taka þjófana upp. Einum slíkum pakka var stolið á innan við þremur mínútum.
Bandaríkin Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Sjá meira