Skallagrímur byrjaði leikinn miklu betur og voru betri allan fyrri hálfleikinn. Þær gátu alltaf fundið gott skot þegar þær vildu og leyfðu einungis þremur Blikum að skora í fyrri hálfleik. Björk Gunnarsdóttir setti niður tvo þrista í röð í upphafi annars leikhluta. Þessir þristar gáfu Blikum trú á verkefnið en þær voru frábærar báðu megin á vellinum í seinni hálfleik.
Blikar komust í fyrsta skipti yfir í leiknum með einungis einni hálfri mínútu eftir af leiknum. Þær spiluðu frábærlega í seinni hálfleik til að ná að vinna upp forskot Skallagríms. Allan fjórða leikhlutann var stemninginn í húsinu þannig að Blikar voru að ná Skallagrím. Blikar voru að spila frábæra pressuvörn og náðu þannig í fullt af snöggum körfum.

Skallagrímsstelpurnar héldu að þessi sigur væri kominn í höfn í hálfleik hugsa ég. Nenntu ekki að hlaupa aftur í vörn í seinni hálfleik og köstuðu boltanum endalaust frá sér. Blikastelpurnar spiluðu frábæra vörn í seinni hálfleik. Settu mikla boltapressu á Skallagrím og þvinguðu þannig fram mikið af töpuðum boltum.
Lykilleikmenn í Blika liðinu stigu upp í lok leiks þegar lykilleikmenn Skallagríms klúðruðu erfiðum skotum og köstuðu boltanum frá sér. Of margar í Skallagríms liðinu sem vilja fá að taka stóru skotin á meðan að það eru betur skilgreind hlutverk í Blikaliðinu.
Hverjar stóðu upp úr?
Kelly Faris er held ég bara minn uppáhalds leikmaður í þessari deild. Orkan hennar varnarlega er gjörsamlega geggjuð, á stóran hlut í að Skallagrímur skoraði einungis 25 stig í seinni hálfleik.
Sanja Orazovic leikmaður Breiðabliks setti niður risaskot þegar Blikar þurftu á henni að halda. Frábær frammistaða hjá henni sóknarlega en hún barðist líka vel varnarlega. Björk Gunnarsdóttir leikstjórnandi Breiðabliks var á eldi í kvöld, setti niður 5 af 9 þriggjastigaskot tilraunum sínum. Björk stýrði einnig liðinu mjög vel sóknarlega í seinni hálfleik.
Hvað gerist næst?
Blikar fara í Hafnarfjörðinn og spila þar gríðarlega mikilvægan leik í fallbaráttunni á miðvikudaginn. Skallagrímur fá Keflavík í heimsókn í Fjósinu á miðvikudaginn en Skallagrímur hefur einungis tapað einu sinni á heimavelli í haust.

Hver var lykillinn að sigrinum í kvöld?
„Stelpurnar. Stelpurnar æfðu mjög vel í vikunni og eiga stórt hrós skilið. Þær lærðu kannski of marga hluti og voru þar af leiðandi ringlaðar á köflum en það er eðlilegt. En ég held að lykillinn hafi bara verið baráttan í stelpunum.”
Eftir slæman fyrri hálfleik voru stelpurnar frábærar í seinni hálfleik. Hvað sagðir þú eiginlega við þær í klefanum?
„Það get ég ekki sagt þér, þá myndu allir aðrir byrja að nota leyndarmálin mín. Nei en við litum bara í eigin barm, við ákváðum að treysta hvor öðru. Ég sagði að það eru ellefu í hóp í kvöld og það þurfa allir að skila sínu framlagi, líka þær sem sitja á bekknum. Þetta er frábær hópur, það er kominn tími til að sýna hvað við getum og við gerðum það í kvöld með frábærum varnarleik. Þegar fimm leikmenn spila saman í vörn þá er restin auðveld.
„Þetta þýðir mikið. Þetta voru erfiðir tveir mánuðir án sigurs. Ég, Margrét og allt félagið höfðum samt alltaf trú á stelpunum. Ég vona að þetta sé fyrsti sigurinn af mörgum þar sem þetta eru frábærar stelpur,” sagði Antonio d’Albero þjálfari Breiðabliks um hvað sigurinn þýðir fyrir liðið.

Tap í kvöld Ari, hvað fór úrskeiðis?
„Bara hellingur. Ég veit það ekki, horfðir þú ekki á leikinn?”
Skallagrímur skoraði einungis tvö stig á fyrstu sjö mínútum seinni hálfleiks. Þetta fannst Ara að liðið hans hefði getað gert betur á þeim kafla.
„Skora fleiri stig, spila betri vörn.”
Burtséð frá tapinu þá spiluðuð þið vel í fyrri hálfleik, hvað gekk upp þá?
„Þar var liðið að spila vel saman. Eins og vanalega þá kemur liðið mitt hrokafullt inn í seinni hálfleikinn og hélt að þetta væri bara komið. Þær komu bara værukærar inn í seinni hálfleikinn og voru ekki tilbúnar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þetta gerist. Við þurfum að skoða það, ég hélt að við værum allavega búin að stíga skrefið. Auðsjáanlega er ég með of margar stjörnur í þessu liði.”
„Hendum boltanum útaf og í hendurnar á hinu liðinu,” sagði Ari Gunnarsson þjálfari Skallagríms um hvernig liðið hans tapaði 18 boltum í kvöld.