Kom ekki til greina að fara í Bónus til að halda Hagavagninum opnum eftir að allt kláraðist Kolbeinn Tumi Daðason og Tryggvi Páll Tryggvason skrifa 12. nóvember 2018 08:00 Ólafur Örn Ólafsson, einn eigenda Hagavagnins. Vísir/Kolbeinn Tumi
Hagavagninn var opnaður á nýjan leik á föstudaginn í glænýjum búningi. Viðskiptavinir þurftu margir hverjir frá að hverfa á laugardaginn vegna þess að hamborgararnir, og annað hráefni, kláruðust fyrr en áætlað var.„Það var bara röð þegar við opnuðum. Hún var ekkert löng en það var samt röð. Svo var bara sá dagur brjálaður og stöðugt rennerí á laugardaginn líka þannig að við þurftum að loka klukkan fimm,“ segir Ólafur Örn Ólafsson sem er einn eiganda vagnsins ásamttónlistarmanninum Emmsjé Gauta og hjónunum Rakel Þórhallsdóttur og Jóhanni GuðlaugssyniÓlafur Örn stóð vaktina í gær þegar blaðamann bar að garði en þá var hann að þrífa og gera klárt fyrir daginn í dag. Ekki var hægt að hafa opið í gær þar sem allt kláraðist og ekki hægt að fylla á það sem vantaði á sunnudegi.SOLD OUT! Við eigum ekkert til svo við neyðumst til að hafa lokað í kvöld og á morgun. Opnum dyrnar aftur á mánudaginn. Takk fyrir að taka vel á móti okkur. pic.twitter.com/XR6GBsbl6j — Hagavagninn (@hagavagninn) November 10, 2018 „Ég er að reyna að þrífa og að pikkla allan lauk sem ég á fyrir morgundaginn,“ segir Ólafur Örn sem segir að ekki hafi komið til greina að fara í Bónus eða aðra verslun til þess að halda staðnum opnum á laugardaginn eða í gær.„Við erum með sérblandað hakk í borgarana og viljum halda okkur við það. Það er þess vegna sem þeir eru góðir,“ segir Ólafur Örn.Staðurinn átti að vera opinn til klukkan níu á laugardaginn og annað eins í gærkvöldi en þrátt fyrir að Ólafur Örn sé svekktur með að hafa ekki getað haft opið fyrir viðskiptavini eins og til stóð sé þó góðs viti að viðtökurnar hafi verið svo góðar að allt hafi klárast. Það muni þó ekki koma fyrir aftur að staðurinn þurfi að loka vegna vinsælda.„Ég vona bara að allir dagar verði svona.“Hagavagninn er gjörbreyttur.Mynd/Kolbeinn Tumi
Matur Neytendur Tengdar fréttir Gauti rifjar upp þegar Ingó kallaði hann hamborgarastað „Ingó í Veðurguðunum er hér með boðið að klippa á borðann og taka fyrsta bitann þegar við opnum Hagavagninn næsta föstudag.“ 6. nóvember 2018 12:30 Fannst vanta „basic burger“ í hverfið Hagavagninn, vinaleg sjoppa í Vesturbænum, mun ganga í endurnýjun lífdaga og opna sem hamborgarastaður á næstunni. Emmsjé Gauti er einn þeirra sem að staðnum koma og hann er spenntur 22. mars 2018 06:08 Hagavagninn verður rifinn og endurreistur Hagavagninum er verið að breyta í hamborgarastað um þessar mundir en ekki tókst að gera hann upp, því þarf að rífa hann og byggja nýjan. Einn aðstandenda vagnsins, Emmsjé Gauti, segir þetta sorglegt en er bjartsýnn á að nýi vagninn muni ekki valda vonbrigðum. 31. maí 2018 06:00 Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira
Gauti rifjar upp þegar Ingó kallaði hann hamborgarastað „Ingó í Veðurguðunum er hér með boðið að klippa á borðann og taka fyrsta bitann þegar við opnum Hagavagninn næsta föstudag.“ 6. nóvember 2018 12:30
Fannst vanta „basic burger“ í hverfið Hagavagninn, vinaleg sjoppa í Vesturbænum, mun ganga í endurnýjun lífdaga og opna sem hamborgarastaður á næstunni. Emmsjé Gauti er einn þeirra sem að staðnum koma og hann er spenntur 22. mars 2018 06:08
Hagavagninn verður rifinn og endurreistur Hagavagninum er verið að breyta í hamborgarastað um þessar mundir en ekki tókst að gera hann upp, því þarf að rífa hann og byggja nýjan. Einn aðstandenda vagnsins, Emmsjé Gauti, segir þetta sorglegt en er bjartsýnn á að nýi vagninn muni ekki valda vonbrigðum. 31. maí 2018 06:00