Mark Alfreðs dugði ekki til Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 3. nóvember 2018 16:23 Alfreð hefur verið heitur efitr að hann kom til baka úr meiðslum vísir/getty Alfreð Finnbogason skoraði fyrra mark Augsburg í 2-2 jafntefli við Nürnberg í þýsku Bundesligunni í fótbolta. Mark Alfreðs kom strax á 11. mínútu eftir stoðsendingu Jonathan Schmid. Schmid var sjálfur á skotskónum á 59. mínútu eftir að Alexander Fuchs hafði jafnað metin fyrir gestina nokkrum mínútum fyrr. Lukas Muhl tryggði Nürnberg stig í leiknum þegar hann jafnaði aftur fyrir gestina á 88. mínútu leiksins. Augsburg siglir lygnan sjó um miðja deild með þrettán stig, ellefu stigum á eftir toppliði Dortmund sem enn er taplaust. Dortmund vann 1-0 sigur á Wolfsburg sem Marco Reus skoraði eina mark leiksins á 27. mínútu. Bayern München gerði jafntefli við Freiburg þar sem Lucas Holer skoraði jöfnunarmark Freiburg á lokamínútum leiksins. Augsburg - Nürnberg 2-2 Bayer Leverkusen - Hoffenheim 1-4 Bayern München - Freiburg 1-1 Schalke - Hannover 3-1 Wolfsburg - Dortmund 0-1 Þýski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn
Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn