Auðvelt hjá Haukum og Val gegn nýliðunum Anton Ingi Leifsson skrifar 6. nóvember 2018 20:56 Lovísa og Karen Helga í leik Vals og Hauka fyrr í vetur. vísir/bára
Haukar og Valur lentu ekki í miklum vandræðum með andstæðinga sína í Olís-deildinni í kvöld. Haukar höfðu betur gegn nýliðum HK á heimavelli 24-17 og Valur rúllaði yfir hina nýliðana KA/Þór, 31-16. Haukarnir voru sterkari frá upphafi en Haukarnir slógu HK út úr bikarnum á laugardaginn. Þær voru 11-9 yfir í hálfleik en stigu á bensíngjöfina í síðari hálfleik og unnu að lokum, 24-17. Haukar eru því komnir upp að hlið Fram í þriðja til fjórða sæti deildarinnar með tíu stig. HK er í sjötta sæti deildarinnar með sex stig. Turið Arge Samuelsen var markahæst hjá Haukum með sjö mörk og Ramune Pekarskyte skoraði fimm. Í liði gestanna var það Elva Arinbjarnar sem var markahæst með fjögur mörk. Í Origo-höllinni var aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi enda en gestirnir af norðan hlupu á vegg. Valur var átta mörkum yfir í hálfleik, 15-7, og munurinn varð svo að endingu fimmtán mörk, 31-16. Valur er áfram á toppi deildarinnar. Liðið er með þrettán stig og er með tveggja stiga forskot á ÍBV en KA/Þór er í fimmta sætinu með átta stig.
Olís-deild kvenna Mest lesið Glódís Perla íþróttamaður ársins með fullt hús stiga Sport Þessi hlutu atkvæði sem Íþróttamaður ársins, lið ársins og þjálfari ársins Sport Þórir Hergeirsson þjálfari ársins Sport Tindastóll upp fyrir Njarðvík Körfubolti Pep neitar því að sínir menn séu komnir á beinu brautina Enski boltinn Tryggvi Snær öflugur en það dugði skammt Körfubolti Albert ekki með þegar Fiorentina steinlá gegn Napoli Fótbolti Karlalið Vals er lið ársins 2024 Sport Björg Elín íþróttaeldhugi ársins Sport Sagt að deyja eftir að Ísland komst ekki í undanúrslit Handbolti Fleiri fréttir Díana Dögg öflug í sigri Uppgjörið: Stjarnan - Haukar 29-32 | Hafnfirðingar byrja árið af krafti Nýtt ár en áfram vinna Valskonur „Þetta eru gríðarlegar framfarir“ „Við eigum okkur allir drauma“ Sagt að deyja eftir að Ísland komst ekki í undanúrslit Árásin í Magdeburg: „Snertir djúpt hvað þetta var nálægt manni“ „Svakalega leiðinlegt fyrir bæði hann og okkur“ „Eiginlega bara þið sem hafið pumpað þetta upp“ Elvar og Aron taka ekki fullan þátt Sigurjón fær að læra af titlaóðum Palicka Tvöfalt sjokk fyrir Alfreð Ballið byrjar hjá strákunum okkar Alfreð setur Þýskaland og Ísland í sama flokk fyrir HM Strákarnir þurftu að sætta sig við silfur annað árið í röð Misjafnt gengi Íslendingaliðanna í Þýskalandi Sigvaldi markahæstur er Kolstad varð bikarmeistari Strákarnir komnir í úrslit Hafsteinn fer á HM Íslensku strákarnir komnir í undanúrslit Elín og Ómar valin handknattleiksfólk ársins Töp hjá Íslendingaliðunum í Þýskalandi Melsungen enn á toppnum eftir sigur í Íslendingaslag Ólafi tvisvar vikið af velli og ekkert skorað síðustu tvær mínúturnar Viggó færir sig um set á nýju ári Stórsigur í toppslag og Melsungen með fjögurra stiga forystu Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Viktor Gísli góður þegar Wisla Plock fór á toppinn Negla Elínar Klöru eitt af flottustu mörkum EM Kolstad vann toppslaginn Sjá meira