Vísir hefur áður fjallað um umferðartengdan vanda sem snýr að kínverskum ökumönnum. Vandræði kínverskra ferðamanna á vegum úti í fjarlægum löndum eru vel þekkt. Reynsluleysi, utanbókarlærdómur og allt aðrar aðstæður eru helstu áhrifavaldarnir að mati þeirra sem þekkja til. Og nokkur atvikanna hafa ratað í fréttir, eins og það í fyrra þegar fjórar kínverskar stúlkur óku út í Hraunhafnará á Snæfellsnesi eftir að hafa fylgt Google Maps í blindni án tillits til þess sem við blasti.

Blaðamaður Vísis varð vitni að sérkennilegu atviki á Skólavörðustíg um síðustu helgi þar sem kínverskur ökumaður vildi leggja bíl sínum í stæði og ók mjög ákveðið utan í bíl sem var í stæðinu fyrir ofan það sem hinn kínverski ökumaður vildi í með bílaleigubíl sinn. Áður var algerlega fyrirliggjandi á aksturslaginu að hann vissi lítið hvað hann var að gera í umferðinni.

Flestir sem slasast í umferðinni eru Kínverjar
Vísir leitaði til Þórhildar Elínardóttur hjá Samgöngustofu fyrr í vikunni til að leita svara við því hvort tölur styddu þessar frásagnir. Hún tók saman tvö gröf sem hún sendi Vísi; annars vegar af rauntölum sem snúa að fjölda slasaðra ferðamanna eftir þjóðernum og hins vegar hlutfallslega.Fyrir áhugamenn um umferðina getur reynst athyglisvert að skoða þessar myndir sem sjá má hér neðar. En, rétt að geta þess að þær snúa að þeim sem slasast í umferðinni, ekki er um minniháttar óhöpp að ræða.
Athygli vekur að þótt Kínverjar hafi oftast allra þjóðerna slasast í umferðinni undanfarin þrjú ár eru Kínverjar í sjötta sæti yfir þær þjóðir sem áttu flesta ferðamenn á Íslandi í fyrra. 86 þúsund Kínverjar fóru frá Keflavíkurflugvelli í fyrra en fjölmennastir eru Bandaríkjamenn, 576 þúsund.

„Tölfræði horfir til slasaðra einstaklinga hvort sem það eru ökumenn, farþegar eða aðrir vegfarendur.“

En, er ástæða til að skoða betur ökuréttindi kínverskra ökumanna, hvort sömu kröfur séu gerðar til ökumanna frá Kína en annarra landa? Þórhildur segir að þessi spurning hafi verið rædd, að sjálfsögðu.
„Eins og aðrar hugmyndir um það sem hægt er að gera til að fækka slysum. Við höfum hins vegar ekki haft spurnir af neinum Evrópuþjóðum sem hafa takmarkað gild ökuréttindi einstakra þjóða og í raun höfum við ekki fundið nægilegan rökstuðning fyrir slíku. Ekki frekar en að við sæjum rökin fyrir því að gilt ökupróf frá Patreksfirði (eða öðrum þorpum á Íslandi þar sem ekki gildir miðborgarumferð) væri dregið í efa í öðrum þjóðríkjum.“
Ekkert lakari kröfur gerðar um kínverskt ökunám
Í ábendingum sem hafa borist Vísi hafa menn talið það skjóta skökku við að stöðugt auknari kröfur eru gerðar til þeirra sem hér búa hvað varðar ökupróf og ökuréttindi en svo virðist sem ökuhæfni kínverskra ökumanna geti reynst afar takmörkuð?
Hún segir það rétt að ýmsar þjóðsögur séu í gangi um að kínverskir ökumenn taki ökupróf í hermi, að ökuréttindi sem þar eru gefin út gildi jafnvel ekki í Kína og svo framvegis en ekkert liggi hins vegar staðfest fyrir um neitt slíkt.
En, er hugsanlegt að hagsmunir þeirra sem leigja bíla aftri því að reglur um ökuskírteini erlendra ökumanna eru hertar og/eða að þeim sé framfylgt?
„Hagsmunir þeirra sem leigja bíl eru augljóslega þeir að ökutækið og viðskiptavinir þeirra komi heilir til baka. Samgöngustofu er ekki kunnugt um að bílleigur hafi unnið að öðru en að tryggja öryggi.“