Læknirinn í lífstíðarfangelsi fyrir æfingaboltamorðin Kristín Ólafsdóttir skrifar 20. september 2018 08:06 Læknirinn Khaw Kim-sun sést hér í lögreglufylgd að lokinni dómsuppkvaðningu í Hong Kong í gær. Ap/Apple Daily
Svæfingalæknir frá Hong Kong hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt eiginkonu sína og dóttur með æfingabolta fylltum af kolmónoxíði. Dómur var kveðinn upp yfir manninum, Khaw Kim-sun, í gær. Í frétt breska dagblaðsins The Guardian segir að Khaw, sem er 53 ára malasískur ríkisborgari, hafi hrist höfuðið þegar refsingin varð honum ljós. Þá brast eitt þriggja eftirlifandi barna hans, sem öll voru viðstödd dómsuppkvaðninguna, í grát. Morðin voru framin árið 2015. Í máli saksóknara kom fram að Khaw hafi skilið umræddan bolta eftir í skotti bíls. Gasið hafi lekið úr boltanum og dregið eiginkonu hans og dóttur til dauða, sem voru læstar inni í bílnum. Þá sökuðu saksóknarar Khaw um að hafa átt í ástarsambandi við nemanda sinn við Kínverska háskólann í Hong Kong. Khaw hafi því ákveðið að myrða eiginkonu sína. Hann hélt því fram í yfirheyrslum hjá lögreglu að dóttir hans hafi vitað af gasinu í æfingaboltanum og ýjaði að því að hún hafi viljað fremja sjálfsvíg.
Hong Kong Tengdar fréttir Myrti eiginkonu sína og dóttur með gasfylltum jógabolta Svæfingarlæknir í Hong Kong myrti eiginkonu sína og dóttur með því að fylla svokallaðan jógabolta með kolmónoxíði. Þetta kom fram við réttarhöld í Hong Kong í vikunni. 23. ágúst 2018 09:00 Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Alls kyns jól um allan heim Erlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Fleiri fréttir Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjá meira
Myrti eiginkonu sína og dóttur með gasfylltum jógabolta Svæfingarlæknir í Hong Kong myrti eiginkonu sína og dóttur með því að fylla svokallaðan jógabolta með kolmónoxíði. Þetta kom fram við réttarhöld í Hong Kong í vikunni. 23. ágúst 2018 09:00