Flutningsmennirnir fimm, þau Ásmundur Friðriksson, Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, Njörður Sigurðsson, Páll Magnússon og Vilhjálmur Árnason, vísa máli sínu til stuðnings í reynslu færeyska félagsins Smyril Line Cargo sem hóf vöruflutninga með ferjunni Mykines til Þorlákshafnar í fyrra. Þau segja reynslu af flutningunum hafa verið langt umfram vætingar. „Með tilkomu þessarar siglingaleiðar hafa farmgjöld til og frá landinu lækkað flutningskostnað einstaklinga og fyrirtækja um 40% en það er helsta ástæðan fyrir þeirri velgengni sem Þorlákshöfn og Smyril Line Cargo hafa notið,“ segir í greinargerð frumvarpsins.
Vegna legu Þorlákshafnar og 16 klukkustunda styttri siglingatíma þangað en til Faxaflóahafna sé hægt að notast við eitt skip í vikulegum siglingum milli Íslands og meginlands Evrópu.

Þar að auki sé höfnin skammt frá markaðssvæði þar sem meirihluti íslensku þjóðarinnar býr og starfar. Auk nálægðar við stærsta markaðinn eru „helstu náttúru- og ferðamannaperlur landsins í innan við 2 til 3 klukkustunda akstri frá höfninni í Þorlákshöfn.“
Áður en aukinni skipaumferð verður beint um höfnina segja flutningsmennirnir að mikilvægt sé að lagfæra aðstæður við höfnina. Innsiglingin geti oft verið varasöm og því nauðsynlegt að bæta öryggi hafnarinnar og sjófarenda. Þar að auki sé tollsvæðið sem höfnin reisti í upphafi fyrir innflutning „löngu sprungið.“
Því er það mat flutningsmannanna að réttast sé að fela samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að skipa starfshóp til að móta stefnu um hvernig standa megi að innviðauppbyggingu hafnarinnar í Þorlákshöfn svo að höfnin geti enn frekar vaxið sem inn- og útflutningshöfn. Þingsályktunartillögu þingmannanna má nálgast hér.