Finnur sig best þegar hann er að glíma Hjörvar Ólafsson skrifar 22. september 2018 11:00 Mikael Leó Aclipen með verðlaunagripina sem hann fékk fyrir sigur í glímu gegn andstæðingi sínum á móti á Írlandi fyrr í þessum mánuði. Fréttablaðið/Ernir
Mikael Leó Aclipen er ungur og efnilegur bardagalistamaður með háleit markmið um frama innan bardagalistarinnar. Hann er skýr og greindur strákur sem veit upp á hár hvert hann stefnir. Það kemur fljótlega upp í hugann að margur er knár þótt hann sé smár þegar maður sér hann framkvæma æfingarútínu sínar. Hreyfingarnar eru fumlausar og greinilega framkvæmdar af bæði hárnákvæmni og af klókum huga. „Ég byrjaði að æfa bardagalistir þegar barnastarfið hjá Mjölni var nýbyrjað og ég mætti þangað af því að ég sá vídeó af mömmu minni í kynningarmyndbandi hjá Mjölni. Þá langaði mig mjög mikið að prófa, ég var bara mjög lítill, kannski sjö eða átta ára gamall,“ segir Mikael Leó um hvað það var sem kveikti áhuga hans á bardagalistum. „Hún var í Víkingaþreki og ég gat ekki verið með þar, en um leið og það byrjaði glímunámskeið fyrir börn þá mætti ég strax þangað og fannst það mjög gaman. Síðan þá hef ég ekkert hætt og mér finnst þetta ofboðslega skemmtilegt,“ segir hann enn fremur um fyrstu kynni sín af glímu og annars konar bardagalistum.Viðtal við bardagakappa og myndataka. bardagaÃþróttir, Mikael Leó Aclipen, Mjölnir„Við vorum bara nokkrir strákar fyrst og fáir á mínum aldri að stunda þetta. Þess vegna hef ég vanist því frá upphafi að vera í kringum eldri stráka og glíma við stráka sem eru bæði stærri og öflugri en ég. Með því að gera það öðlaðist ég góða tækni, fótavinnu og lærði að lesa í andstæðinginn og nota klókindi í því sem ég er að gera. Reyna að gera eitthvað og hafa hugsun á bak við það sem ég er að gera. Það hjálpar þér ákveðið langt að hafa náttúrulegan styrk, en þú kemst ekki í fremstu röð nema þú hafir góða tækni og hraða fótavinnu eins og ég hef æft og er orðinn góður í að mínu mati,“ segir hann þegar hann er beðinn um að lýsa eigin styrkleikum í íþróttinni. „Við erum bara tveir eftir af þeim sem byrjuðu á sínum tíma í þessu og eru jafn gamlir og ég. Mér finnst það allt í lagi þar sem ég tengi betur við þá sem eru nokkrum árum eldri en ég. Mér finnst alveg strákarnir í skólanum skemmtilegir og mér finnst fínt í skólanum, en mínir bestu vinir eru í Mjölni og nokkrum árum eldri en ég. Þessi iðkun á þessari íþrótt hefur því klárlega gefið mér mjög mikið,“ segir Mikael sem var að hefja nám í tíunda bekk í grunnskóla í haust, en það er ekki að merkja að hann sé einungis 15 ára gamall þegar rætt er við hann, slík er skynsemin og þroskinn. „Þegar ég var ellefu ára gamall byrjaði ég svo í unglingatímum og þar er flokkað eftir getu. Fljótlega fór ég að keppa upp fyrir mig eins og ég sagði áðan. Við það að fara upp um flokka og vera að æfa með eldri og betri krökkum þá eignaðist ég mjög góða vini þar. Mér finnst krakkar á mínum aldri oft svolítið óþroskaðir og ég tengi betur við þá sem eldri eru. Það kemur alveg fyrir að ég hitti krakka á mínum aldri sem mér finnst skemmtilegir, en ég ver mestum tíma með eldri krökkum,“ segir þessi öflugi strákur sem leggur líkama og sál í æfingar sínar, enda á hann sér háleita drauma í íþróttinni. Hann hefur aldrei borðað nammi eða drukkið gos og borðar mikinn fisk og það sést vel á líkamsbyggingu hans að hann leggur stund á heilbrigt líferni.Mikael Leó er einbeittur þegar hann æfir bardagalistir. Fréttablaðið/ErnirNýlega fór hann með föður sínum í keppnisferð til Írlands þar sem hann keppti í þyngdarflokki upp fyrir sig í brasilísku jiu jitsu. Hann glímdi þar við andstæðing sem var höfðinu hærri en hann, en lét það ekki á sig fá og fór með sigur af hólmi. „Það var mjög gaman að fara út og keppa við nýjan andstæðing. Það var líka fínt að pabbi var að berjast sjálfur og þá var hann ekki jafn stressaður og hann og mamma verða stundum. Hann náði að dreifa huganum og var líka að hugsa um sinn bardaga,“ segir Mikael um ferðina til Írlands. „Fyrst æfði ég bara jiu jitsu, sem er bara glíman, um tíu ára aldur fór ég svo að fikra mig nær MMA, bardagaíþróttinni, það er að kýla og sparka í púða og læra svona grunnstöður í þeirri íþrótt. Mér finnst skemmtilegast þegar ég fæ að blanda saman hlutum úr glímunni og MMA. Ég get ekki beðið eftir því að verða nógu gamall til þess að fá að keppa af fullum krafti í MMA,“ segir bardagalistamaðurinn með glampa í augum þegar blaðamaður sem er blautur á bak við eyrun á þessu sviði spyr hvernig tröppugangurinn hafi verið hjá honum í bardagalistunum og hvað það sé sem veiti honum mesta ánægju á meðan hann stundar íþrótt sína.Draumur Mikael Leós er að ná miklum frama í bardagalist. Fréttablaðið/ErnirÞann tíma sem blaðamaður ver í glæsilegum húsakynnum Mjölnis á Flugvallarvegi í Öskjuhlíð sést glöggt hversu vinsamleg stemming er á meðal þeirra sem æfa þar þrátt fyrir að menn séu komnir til þess að taka hver á öðrum. Strangar reglur gilda um hvernig þeir sem æfa jiu jitsu og MMA nota það sem þeim er kennt innan veggja Mjölnis og er það skilyrði þess að heimilt sé að æfa þar að bardagalistin sé einungis notuð í æfingum, keppni eða í sjálfsvörn. Eftir að viðtalinu lýkur spígsporar Gunnar Nelson, fremsti MMA bardagamaður Íslands, um ganga Mjölnis, en Mikael Leó er þá nýbúinn að nefna það í samtali við blaðamann að hann sé einn þriggja glímumanna sem hann lítur upp til. Þeir kumpánar heilsast eins og perluvinir, eins og raunar allflestir sem spássera um gangana í þessu fallega laugardagshádegi. Þetta virkar eins og ein stór og þétt fjölskylda sem er að hittast í vel heppnuðu fjölskylduboði. Framtíðarsýn Mikaels Leós hvað bardagalistina varðar er skýr og markmiðin ljós í hans huga. „Minn draumur er að komast jafn langt og Gunnar, Conor [McGregor] og Demetrious [Johnson]. Vonandi tekst mér að feta í fótspor þeirra. Ég mun allvega gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að svo verði. Næsta verkefni mitt er hins vegar Íslandsmeistaramótið í jiu jitsu sem er fljótlega og einbeitingin er þar þessa stundina. Svo fer ég vonandi í fleiri ferðir til útlanda á næstunni,“ segir Mikael dreyminn um framtíðina og vonandi rætist framtíðarsýnin.
Birtist í Fréttablaðinu MMA Mest lesið Arnar Pétursson dæmdur úr leik á Íslandsmótinu og er mjög ósáttur Sport Sveindís og félagar sendar í frí á meðan HM karla fer fram Fótbolti Systurnar hugsi vegna virkni stelpnanna á TikTok Fótbolti Skýrsla Arons: Afleit byrjun sem verður nú að svara fyrir Fótbolti „Ég var bara með niðurgang“ Fótbolti Skórnir hennar seldust upp á mínútu Körfubolti Glódís Perla skipti um stuttbuxur í miðjum leik Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Finnland 0-1 | Finnar þorðu og stelpurnar okkar horfðu upp á tap Fótbolti „Tinna mamma“ heldur áfram utan um stelpurnar sínar á EM Fótbolti Frábærar myndir af glöðum Íslendingum á EM Fótbolti Fleiri fréttir Skýrsla Arons: Afleit byrjun sem verður nú að svara fyrir Sveindís og félagar sendar í frí á meðan HM karla fer fram Arnar Pétursson dæmdur úr leik á Íslandsmótinu og er mjög ósáttur Skórnir hennar seldust upp á mínútu Systurnar hugsi vegna virkni stelpnanna á TikTok Dramatík í endurkomusigri Norðmanna í hinum leik íslenska riðilsins Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Jóhann Berg kominn með nýtt lið á Arabíuskaganum Sveindís: Hefði kannski átt að gera meira til að koma mér inn í leikinn „Heilt yfir var ég bara sáttur“ „Ég var bara með niðurgang“ Ingibjörg: Gríðarlega svekkjandi „Mér fannst við alveg halda þeim í skefjum“ Einkunnir íslensku stelpnanna: Cecilía best en liðið betra manni færri Twitter yfir leiknum gegn Finnlandi: Vonbrigði í Thun Courtois: Trent Alexander-Arnold martröð fyrir markverði Glódís Perla skipti um stuttbuxur í miðjum leik Íslenska landsliðið í krikket á leiðinni til Varsjár Frábærar myndir af glöðum Íslendingum á EM „Við erum betra liðið“ Fyrsta byrjunarlið Íslands á EM Uppgjörið: Ísland - Finnland 0-1 | Finnar þorðu og stelpurnar okkar horfðu upp á tap Vissir um að Messi verði áfram í Miami Mamman hefur trú á Sveindísi: „Hún er að fara láta þeim líða hræðilega“ Feðgarnir spenntir fyrir leiknum: „Þá þarf ég að fljúga aftur til Sviss“ „Hún fann það sjálf að hún þyrfti að prófa eitthvað nýtt“ „Ungur og hæfileikaríkur leikmannahópur“ Margar milljónir í húfi fyrir hvern leikmann í íslenska liðinu á EM „Verður vonandi langt sumar í Sviss“ Leikdagur á EM: Áþreifanleg spenna og Finnar jafnvel spenntari Sjá meira