Ekkert mark var skorað í grannaslagnum milli Real Madrid og Atletico Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Hart var barist í leiknum en það var lítið um færi. Framan af var Atletico sterkari en þegar líða fór á leikinn komst Real inn í leikinn.
Ekkert mark var skorað í leiknum og skiptu því liðin stigunum bróðurlega á milli sín en sex gul spjöld fóru á loft í leiknum.
Real hefur því ekki unnið í tveimur leikjum í röð og eru jafnir Barcelona á toppi deildarinnar með fjórtán stig.
Atletico er með tveimur stigum minna í fjórða sætinu en í því þriðja er Sevilla með þrettán stig.
Markalaust í daufum borgarslag
