Undir Halastjörnu á stærstu kvikmyndhátíð Asíu Stefán Árni Pálsson skrifar 7. september 2018 12:30 Ingvar E. og Atli Rafn fara með hlutverk í myndinni.
Undir Halastjörnu tekur þátt í World Cinema hluta Busan, stærstu kvikmyndahátíðar Asíu sem fram fer í Suður Kóreu 4.-13.október, og er þetta jafnframt heimsfrumsýning á myndinni. Tvær íslenskar myndir eru á hátíðinni en Lof mér að falla er í sama flokki. Undir Halastjörnu verður svo frumsýnd 12. október hér á landi en myndin er byggð á Líkfundarmálinu sem vakti gríðarlega athygli hér á landi árið 2004. Leikstjóri, handritshöfundur og framleiðandi er Ari Alexander Ergis Magnússon - aðrir framleiðendur eru Friðrik Þór Friðriksson og Kristinn Þórðarson og Leifur Dagfinsson hjá Truenorth. Hugmyndin að myndinni kviknaði út frá raunverulegum atburðum sem gerðust í Litháen og á Íslandi árið 2004. Þann 4. febrúar það ár fór kafari í höfnina á Neskaupstað til að kanna skemmdir á bryggjumannvirkum en fann í staðinn illa leikið lík sem hafði verið þyngt með keðjum og kastað í sjóinn. Lögreglan hóf ýtarlega rannsókn og í ljós kom að líkið væri af 26 ára Litháa sem við köllum Mihkel í myndinni. Böndin bárust fljótt að smákrimmanum Bóbó sem var nýkominn til bæjarins frá Reykjavík og tveimur öðrum sem komið höfðu að heimsækja hann. Annar þeirra var Jóhann en hinn Igor, vinur Mihkels frá Litháen sem hafði búið nokkur ár á Íslandi og unnið fyrir Jóhann. Í myndinni er Litháen skipt út fyrir Eistland til að hlífa fólki sem tengist sögunni.Leikstjóri: Ari Alexander Ergis MagnússonHandritshöfundur: Ari Alexander Ergis MagnússonMeðframleiðendur: Evelin Soosaar-Penttilä, Egil Ødegård Riina Sildos, Jörundur Rafn Arnarson og Jóhann G. JóhannssonAðalhlutverk: Pääru Oja, Kaspar Velberg, Atli Rafn Sigurðsson og Tómas Lemarquis
Bíó og sjónvarp Mest lesið „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ Lífið Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ Lífið Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Lífið Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Lífið Ofboðslega falleg berskjöldun Menning Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Lífið Flottasti garður landsins - taktu þátt! Lífið samstarf Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Lífið Bestu hlutverk Michaels Madsen: Óþokki með viskýrödd og uppáhald Tarantino Bíó og sjónvarp Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Lífið Fleiri fréttir Bestu hlutverk Michaels Madsen: Óþokki með viskýrödd og uppáhald Tarantino Djöfullinn klæðist Prada á ný Grindavík sigursæl erlendis Skapandi sumarstarf varð að þætti á laugardagskvöldum á RÚV Næsti Bond undir þrítugu og þrír efstir á blaði Villeneuve leikstýrir næstu mynd um James Bond Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að heilla heiminn Amatörar, hvalfirskur bóndi og barátta við borgina verðlaunuð Sjá meira