Hvöttu Víkverja og ritstjórn Morgunblaðsins til að biðjast afsökunar Samúel Karl Ólason skrifar 14. ágúst 2018 16:15 Í bréfinu segir að skrif Víkverja um alnæmisfaraldurinn, sem birtust í gær, séu blaðinu til háborinnar skammar. Vísir/GVA
Forsvarsmenn Samtakanna ´78 og HIV-Íslands afhentu aðstoðarritstjóra Morgunblaðsins bréf í dag þar sem skrif Víkverja í gær voru harðlega gagnrýnd og fordæmd. Þá voru bæði Víkverji og ritstjórn Morgunblaðsins hvött til að biðjast afsökunar. María Helga, formaður Samtakanna ´78, Sigurður Júlíus, varaformaður, og Einar Þór, framkvæmdastjóri HIV-Íslands, fóru, samkvæmt tilkynningu á vef Samtakanna ´78, upp í Hádegismóa í dag og afhentu Karli Blöndal, aðstoðarritstjóra Morgunblaðsins, áðurnefnt bréf.Í bréfinu segir að skrif Víkverja um alnæmisfaraldurinn, sem birtust í gær, séu blaðinu til háborinnar skammar. Ekki hafi verið um uppblásinn hræðsluáróður fortíðarinnar að ræða, borinn út af góðhjörtuðum hjúkrunarkonum. „Hann er raunveruleg, aðsteðjandi hætta sem hefur kostað 35 milljónir mannslífa um heim allan, þar af eina milljón manns árið 2016. Sú tala væri enn hærri ef ekki hefði verið háð áratugalöng barátta, með fræðslu og forvarnir að vopni, og þróuð byltingarkennd lyf sem breyttu dauðadómi í möguleikann á heilbrigðu lífi.“ Þá segir enn fremur að áhrif alnæmis á homma og annað hinsegin fólk, hvar sem er í heiminum, ættu að vera á allra vitorði. „Víkverji og ritstjórn Morgunblaðsins afhjúpa vítavert skeytingarleysi um eigið viðfangsefni með þessum skrifum, sem taka ekki mið af augljósustu staðreyndum, sögulegum gögnum og víðtækum heimildum um alvarleika alnæmisfaraldursins. Ritstjórn Morgunblaðsins setur niður.“ Bréfið í heild sinni má lesa hér að neðan. María Helga, formaður Samtakanna '78, Sigurður Júlíus, varaformaður, og Einar Þór, framkvæmdastjóri HIV-Ísland, gerðu sér ferð í Hádegismóa og afhentu Karli Blöndal, aðstoðarritstjóra Morgunblaðsins, bréf þar sem skrif „Víkverja“ þann 13. ágúst eru fordæmd og harðlega gagnrýnd. Bæði „Víkverji“ sem og ritstjórn Morgunblaðsins eru hvött til að biðjast afsökunar á skrifunum.Bréfið má lesa hér að neðan: Til ritstjóra Morgunblaðsins Skrif Víkverja um alnæmisfaraldurinn sem birtust í Morgunblaðinu þann 13.08.2018 eru blaðinu til háborinnar skammar. Alnæmisfaraldurinn er ekki uppblásinn hræðsluáróður fortíðarinnar, borinn út af „góðhjörtuðum hjúkrunarkonum“. Hann er raunveruleg, aðsteðjandi hætta sem hefur kostað 35 milljónir mannslífa um heim allan, þar af eina milljón manns árið 2016. Sú tala væri enn hærri ef ekki hefði verið háð áratugalöng barátta, með fræðslu og forvarnir að vopni, og þróuð byltingarkennd lyf sem breyttu dauðadómi í möguleikann á heilbrigðu lífi. Áhrif alnæmis á homma og annað hinsegin fólk, á Íslandi og annars staðar, ættu að vera á allra vitorði. Víkverji og ritstjórn Morgunblaðsins afhjúpa vítavert skeytingarleysi um eigið viðfangsefni með þessum skrifum, sem taka ekki mið af augljósustu staðreyndum, sögulegum gögnum og víðtækum heimildum um alvarleika alnæmisfaraldursins. Ritstjórn Morgunblaðsins setur niður. Ragnhildur Sverrisdóttir, félagskona Samtakanna ’78 til margra áratuga, svarar Víkverja af sárri reynslu af þessum tíma: Pistill þinn um alnæmi er ekkert annað en högg í andlit hinsegin samfélagsins, sem var harkalega leikið af alnæmisfaraldrinum á 9. áratug síðustu aldar. Ég ein gæti sjálfsagt talið upp tugi ungra homma, sem urðu þessum skelfilega sjúkdómi að bráð. Í mörgum tilvikum dóu þeir í felum, fjölskyldur þeirra vildu ekki viðurkenna að þeir hefðu látist úr sjúkdómnum, sem óupplýstir hræsnarar töldu sérstaka refsingu guðs fyrir líferni þeirra. Sumir dóu einir í útlöndum, fjarri ættingjum sem ekkert vildu með þá hafa.Ég leyfi mér að setja hér með pistil Lönu Kolbrúnar Eddudóttur, fyrrverandi formanns Samtakanna 78, á Facebook:„Þvílíkt bylmings kjaftshögg á okkur sem lifðum AIDS tímana með allri sinni sorg! Fjölskyldur sem horfðu á eftir kornungum ástvinum í gröfina. Vinir úr hinsegin samfélaginu sem reyndu af veikum mætti að styðja og hjúkra þeim sem voru að deyja. Svo ekki sé minnst á áhugaleysi, fordóma og illsku almennings gagnvart þeim sem smituðust. Ég er miður mín.Þessi Víkverji á umsvifalaust að koma fram undir nafni og biðjast afsökunar. Og svo það sé á hreinu þá hefur ekkert breyst varðandi HIV og AIDS: ef þú veikist og færð ekki lyf, þá deyrðu.Þetta sár er óuppgert í íslenskri samtímasögu.” Ég get tekið undir hvert orð Lönu. Þessi skrif eru mjög ónærgætin og sérstaklega sárt að þau skuli koma beint í kjölfar Hinsegin daga. Þá er ég aðeins að vísa til okkar hér á Íslandi, því Víkverja hlýtur að vera fullkunnugt um hverslags skelfileg heilbrigðisógn alnæmi er og hefur verið t.d. í Afríku. Nei, mannkynið þurrkaðist ekki út í einu vetfangi, en alnæmið er skelfilegur sjúkdómur sem felldi svo marga af minni kynslóð. Því mun ég aldrei gleyma. Og ég - og annað hinsegin fólk - gerir þá kröfu til Morgunblaðsins að ekki sé vaðið yfir minningu þeirra á skítugum skónum og það af ekki merkilegri ástæðu en að reyna að slá einhverjar pólitískar keilur í loftslagsmálum! “Kannski var málið ekki jafn alvarlegt og talið var” skrifar Víkverji. Það er skömm að þessu! Með von um einlæga afsökunarbeiðni í Morgunblaðinu.” Samtökin ’78 og HIV-Ísland taka heilshugar undir með Ragnhildi og Lönu Kolbrúnu. Við krefjumst þess að Víkverji stígi fram undir nafni og biðjist afsökunar á þessum skammarlegu skrifum. Ennfremur ætti ritstjórn Morgunblaðsins að sjá sóma sinn í því að biðjast afsökunar á birtingu pistilsins. Í því fælist lágmarksvirðing við ungu mennina sem ekki gátu gengið með okkur í Gleðigöngunni á laugardaginn var.
Tengdar fréttir Telur alnæmisskrif Víkverja eiga skilið sérstök hálfvitaverðlaun "Nú er lítið og sjaldan minnst á alnæmi og hættan virðist liðin hjá. Kannski var málið ekki jafn alvarlegt og talið var.“ 13. ágúst 2018 14:49 Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Innlent Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Innlent Fleiri fréttir Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Sjá meira
Telur alnæmisskrif Víkverja eiga skilið sérstök hálfvitaverðlaun "Nú er lítið og sjaldan minnst á alnæmi og hættan virðist liðin hjá. Kannski var málið ekki jafn alvarlegt og talið var.“ 13. ágúst 2018 14:49