Óvenjuhlýtt loft fór yfir landið í gær og mældist hitinn víða yfir 20 gráðum. Hæst fór hitinn í 24,7 gráður á Patreksfirði. Á höfuðborgarsvæðinu varð hann mestur 23,1 gráða.
Þrumuveður var á Suðvesturlandi fyrri partinn og einnig fyrir norðan síðdegis. Þar laust eldingum niður.
„Það verður áfram milt loft og austlægar átti næstu daga,“ segir Hrafn Guðmundsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. „Lægðir koma yfir landið þannig að það mun rigna eitthvað. Það verður meira og minna skýjað á landinu öllu á morgun og hitinn verður mestur vestan til, eitthvað í kringum 18 gráður.“
Á miðvikudag segir Hrafn aðra lægð koma með úrkomu austan til á landinu. Besta veðrið verður þá suðvestanlands, segir hann.
Hitinn hæstur á Patreksfirði

Tengdar fréttir

Sjaldgæft veðurfyrirbrigði í höfuðborginni
Það voru evrópskir sumarvindar sem léku um höfuðborgarbúa í dag á heitasta degi ársins.

Talsverðar líkur á öflugum skúradembum með þrumum og eldingum
Útivistarfólk og ferðalangar eru beðnir um að hafa í huga að hvassviðri verður á Suðausturlandi í dag og einnig eftir hádegi á Snæfellsnesi og Vestfjörðum með snörpum vindhviðum.

Hlýtt en hvasst á morgun
Hlýindi úr austri koma yfir landið með látum á morgun.