Skemmdarverk unnin á velli Golfklúbbs Reykjavíkur Birgir Olgeirsson skrifar 21. júlí 2018 12:40 Var golfbílunum ekið inn á flatir vallarins. Vísir/Facebook
Skemmdarverk voru unnin á velli og tækjum Golfklúbbs Reykjavíkur í Grafarholti í nótt. Þar voru fjórir golfbílar teknir ófrjálsri hendi og þeim ekið inn á völlinn. Var ekið yfir flatir og ofan í sandglompur ásamt því að miklar skemmdir voru unnar á einum bílnum. Framkvæmdastjóri klúbbsins segir tjónið verulegt. „Þetta er mikið tjón,“ segir Ómar Örn Friðriksson, framkvæmdastjóri GR, í samtali við Vísi. Bendir hann á að miklar skemmdir hafi verið unnar á þremur flötum vallarins, en flatirnar eru afar viðkvæmar og mikill kostnaður sem fer í að byggja þær upp og halda við. Ómar segir golfbílana hafa verið tekna úr geymslum og ekið inn á flöt og glompur átjándu brautar. Einnig var ekið inn á flöt fyrstu holunnar og þeirrar þriðju ásamt glompum. „Þetta eru bara skemmdarverk og leiðinlegt sérstaklega fyrir okkar góðu félagsmenn að þurfa að upplifa svona skemmdir,“ segir Ómar. Hann segir starfsmennina eiga eftir að yfirfara upptökur úr eftirlitsmyndavélum og biður þá sem einhverjar upplýsingar geta veitt um málið að hafa samband við lögreglu.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Sjá meira