Stjarnan áfram þrátt fyrir tap í Eistlandi og mætir líklega FCK Anton Ingi Leifsson skrifar 19. júlí 2018 17:45 Rúnar og félagar eru komnir áfram. vísir/bára Stjarnan er komið áfram í aðra umferð forkeppni Evrópudeildarinnar þrátt fyrir 1-0 tap gegn Nömme Kalju í Eistlandi í dag. Stjarnan var í frábærum málum eftir fyrri leikinn þar sem unnu 3-0 sigur á Stjörnuvelli svo aðalatriðið var að spila góðan varnarleik í dag. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað. Stjörnumenn lágu vel til baka og vörðust fimlega. Þau skot sem komu á markið réð Haraldur Björnsson svo fullkomlega við. Ekkert mark var skorað fyrr en á 88. mínútu er Eistarnir komust yfir með marki frá Alex Matthias Tamm. Það skiptu litlu máli því Stjarnan vann samanlagt 3-1. Stjarnan er því komið áfram í næstu umferð og þar verður andstæðingurinn líklega stórlið FCK en þeir eru 1-0 yfir í sinni viðureign KuPS. Liðin eigast við á Parken í kvöld. Evrópudeild UEFA
Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 1-2 | Njarðvík leiðir Suðurnesjaslaginn en missir Oumar Diouck í leikbann Íslenski boltinn
Leik lokið: HK - Þróttur 4-3 | HK fer með eins marks forskot í senini leikinn eftir rússibanareið Íslenski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 1-2 | Njarðvík leiðir Suðurnesjaslaginn en missir Oumar Diouck í leikbann
Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 1-2 | Njarðvík leiðir Suðurnesjaslaginn en missir Oumar Diouck í leikbann Íslenski boltinn
Leik lokið: HK - Þróttur 4-3 | HK fer með eins marks forskot í senini leikinn eftir rússibanareið Íslenski boltinn