Tillagan kemur í kjölfar umfjöllunar Fréttablaðsins um launaskrið bæjarstjórans en launin hækkuðu um 612 þúsund krónur á mánuði milli áranna 2016 og 2017. Sem bæjarfulltrúi og bæjarstjóri er Ármann með tæpar 2,5 milljónir króna í laun á mánuði, nokkuð sem gagnrýnt hefur verið harðlega, meðal annars af Birki Jóni.
Fyrir kosningar sendi Birkir frá sér yfirlýsingu um að laun bæjarstjórans hefðu keyrt fram úr öllu hófi og að hann myndi beita sér fyrir því að þau yrðu endurskoðuð og lækkuð á nýju kjörtímabili.

En í ljósi þess að gagnrýnin sneri öll að launakjörum bæjarstjórans, er virkilega þörf á að lækka laun bæjarfulltrúa líka?
„Það er eitthvað sem forsætisnefnd og allir kjörnir fulltrúar þurfa að skoða í framhaldinu. Ég hef sagt að það sé rétt að skoða þessa hluti í samhengi við önnur sveitarfélög og við erum rétt að hefja það samtal,“ segir Birkir Jón.
Í tillögu bæjarstjórans, sem hann segir vera til að svara gagnrýni á launakjör bæjarstjórnenda, er gert ráð fyrir 15 prósenta lækkun launa en líkt og Fréttablaðið greindi frá hækkuðu laun hans um 32,7 prósent milli áranna 2016 og 2017.
Nái lækkunin fram að ganga þýðir það að mánaðarlaun Ármanns, sem bæjarstjóra og bæjarfulltrúa, lækka um 347 þúsund krónur á mánuði. Mánaðarlaun bæjarstjórans færu því úr tæpum 2,5 milljónum í rúmlega 2,1 milljón.
Það gerir hann, eftir sem áður, að næstlaunahæsta bæjarstjóra landsins. Aðeins Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, fær greidd hærri laun fyrir starfið. Algeng laun bæjarstjóra á Íslandi eru á bilinu 1,5 til 1,7 milljónir á mánuði.