Ljúfasti hestur í heimi með nýtt heimsmet Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 7. júní 2018 10:50 Þórarinn Eymundsson og nýi heimsmeistarinn, Þráinn frá Flagbjarnarholti. Þráinn er brúnskjóttur. Jaap Groven
Stóðhesturinn Þráinn, sex vetra frá Flagbjarnarholti í Holta og Landsveit gerið það heldur betur gott í gærkvöldi þegar hann setti heimsmet í kynbótadómi í Hólum í Hjaltadal því hann fékk 9,11 í meðaleinkunn fyrir hæfileika og 8,95 í aðaleinkunn. Bróðir hans, Þórálfur frá Prestbæ, átti fyrra metið sem var sett í fyrra. Eigendur Þráins eru Hollendingar eða þau Yvonne Groven og Jaap Groven. Þórarinn Eymundsson frumtamdi Þráinn og hefur séð um þjálfun hans frá því að hann var fjögurra vetra. „Þetta er ljúfasti hestur í heimi og langbesti hestur sem ég hef þjálfað og riðið, hann gerir alltaf allt sem maður biður hann um, ég hef aldrei áður kynnst eins mögnuðum hesti“, segir Þórarinn. Þráinn fékk m.a. 9.0 fyrir tölt, brokk, skeið, stökk, fegurð í reið og hægt tölt. Þá fékk hann 9,5 fyrir fet og vilja og geðslag, auk þess fékk hann 8,5 fyrir hægt stökk. Þá má geta þess að Þráinn fékk 9,5 fyrir samræmi. „Við Þráinn verðum saman á Landsmóti hestamanna í Reykjavík í næsta mánuði í kynbótasýningu. Eftir það sleppi ég honum í merar Í Holtsmúla í Landsveit hjá Svanhildi Hall og Magnúsi Lárussyni þar sem hann fær að njóta lífsins í einhverjar vikur“, bætir Þórarinn við. Þráinn er undan Álfi frá Selfossi og Þyrlu frá Ragnheiðarstöðum.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Sjá meira