Alvogen ræður Jefferies sem ráðgjafa Hörður Ægisson og Kristinn Ingi Jónsson skrifa 16. maí 2018 07:00 Róbert Wessman, forstjóri Alvogen, stofnaði lyfjafyrirtækið með samstarfsmönnum sínum árið 2009. Vísir/eyþór
Lyfjafyrirtækið Alvogen hefur ráðið fjárfestingarbankann Jefferies sem ráðgjafa í tengslum við mögulega sölu á starfsemi fyrirtækisins í mið- og austurhluta Evrópu. Í fjárfestakynningu sem bankinn hefur útbúið og Markaðurinn hefur undir höndum kemur fram að starfsemin hafi skilað tekjum upp á um 200 milljónir dala, sem jafngildir um 20,6 milljörðum króna, á síðasta ári. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) sem hlutfall af tekjum er jafnframt sagður hafa verið mitt á milli 20 og 30 prósent á árinu. Í kynningunni, sem er dagsett 5. apríl, er ekki minnst berum orðum á Alvogen heldur er félag að nafni Alloy Group sagt hafa ráðið Jefferies til þess að veita ráðgjöf vegna sölunnar. Af efnisatriðum kynningarinnar má þó ljóslega ráða að hún fjalli um starfsemi lyfjafyrirtækisins Alvogen í Mið- og Austur-Evrópu. Halldór Kristmannsson, framkvæmdastjóri hjá Alvogen, sagðist í samtali við Markaðinn ekki vilja tjá sig um trúnaðargögn. Hann sagði við Viðskiptablaðið í mars að engin ákvörðun hefði verið tekin um að selja starfsemi fyrirtækisins í Evrópu. Umrætt verkefni ber vinnuheitið „Project Nuna“. Í kynningunni er starfsemi Alvogen í mið- og austurhluta Evrópu kynnt sem ákjósanlegur fjárfestingarkostur. Er fyrirtækið sagt vera í góðri stöðu til þess færa sér í nyt þau miklu vaxtartækifæri sem fyrir hendi eru á evrópskum nýmörkuðum, en tekið er fram að gert sé ráð fyrir að lyfjamarkaðurinn í þessum hluta álfunnar vaxi að meðaltali um 5,2 prósent á ári frá 2016 til 2020. Mun veltan á markaðinum þá vera um 22,4 milljarðar evra, 2.738 milljarðar króna, árið 2020.Höfuðstöðvar Jefferies í New York.Vísir/gettyBúist er við sérstaklega miklum vexti á Rússlandsmarkaði, að því er segir í kynningunni, eða um 8 prósent að meðaltali á ári næstu þrjú árin. Vöxtur starfseminnar síðustu átta árin er rakinn með ítarlegum hætti í kynningunni. Er sala Alvogen á svæðinu sögð hafa vaxið að meðaltali um 30 prósent á ári frá árinu 2011, árleg velta sé nú um 200 milljónir dala og EBITDA-hlutfall jafnframt í kringum 25 prósent. Miðað við hefðbundna EBITDA-margfaldara fyrir lyfjafyrirtæki á nýmörkuðum gæti heildarvirði Alvogen í Mið- og Austur-Evrópu þannig numið hátt í einum milljarði dala, samkvæmt lauslegum útreikningum Markaðarins, eða sem jafngildir ríflega 100 milljörðum króna. Er það í samræmi við það sem heimildarmenn Reuters tjáðu fréttaveitunni í síðasta mánuði. Yfir 900 manns starfa hjá Alvogen í mið- og austurhluta Evrópu og þar af um 450 í sölu- og markaðsmálum. Fyrirtækið hefur vaxið hratt í álfunni með samrunum og yfirtökum en til dæmis festi það kaup á rússneska lyfjafyrirtækinu Omega Bittner á síðasta ári og Labormed, sem var eitt stærsta samheitalyfjafyrirtæki í Rúmeníu, árið 2012. Alvogen er í meirihlutaeigu alþjóðlegu fjárfestingarsjóðanna CVC Capital Partners og Temasek. Morgunblaðið greindi frá því í mars að Róbert Wessmann, forstjóri og stofnandi Alvogen, ætti tilkall til ríflega 22 prósenta hlutar í lyfjafyrirtækinu. Fram kom að hlutur Róberts væri vistaður í sjálfseignarsjóði á Jersey. Staðfesti Árni Harðarson, aðstoðarforstjóri Alvogen, að sjóðurinn hefði eignast 74 prósenta hlut í eignarhaldsfélaginu Aztiq Finance Holding í Lúxemborg árið 2015 en það félag fer með um 30 prósenta hlut í lyfjafyrirtækinu. Árni hafnaði því hins vegar að Róbert réði yfir hlutnum í raun. Markaðinum barst bréf frá lögmannsstofunni White & Case í Lundúnum þar sem þess var krafist, fyrir hönd Alvogen Lux Holdings, að ekki yrði greint frá innihaldi kynningarinnar sem blaðið hefur undir höndum. Að öðrum kosti áskildi félagið sér allan rétt til þess að grípa til lagalegra úrræða, þar á meðal að fara fram á lögbann.
Birtist í Fréttablaðinu Lyf Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira