Fjölmenn flóttatilraun fór úr böndunum Stefán Ó. Jónsson skrifar 11. apríl 2018 06:32 Félagar fanganna reyndu að sprengja þá út úr fangelsinu í nótt. Vísir/AFP
Fjöldi fanga sem hýrst hafði í fangelsi í norðurhluta Brasilíu er látinn eftir það sem virðist hafa verið fjölmenn flóttatilraun. Fangahópurinn er sagður í erlendum miðlum hafa notið aðstoðar vopnaðrar sveitar utan veggja fangelsisins sem á að hafa reynt að sprengja félaga sína út úr fangelsinu. Talið er að 20 hafi látist í átökunum í nótt, 19 úr liði fanga og aðstoðarmanna þeirra og einn fangavörður. Fjórir fangaverðir særðust að sama skapi, þar af einn alvarlega. Talsmenn fangelsins segja að fangaverðirnir hafi þurft að verjast árásum bæði innan sem utan fangelsisins. Fangaverðir rannsaka nú hvort einhver fanganna hafi náð að flýja í nótt, hverjir stóðu á bakvið flóttann sem og hvernig föngunum tókst að skipuleggja tilraunina. Fangauppreisnir eru tíðar í brasilískum fangelsum. Til að mynda létust 56 fangar og fangaverðir í uppreisn í Manaus í fyrra.
Brasilía Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira