Unglingsstúlka myrt í Lundúnum Stefán Ó. Jónsson skrifar 3. apríl 2018 05:36 Fjölmargir íslenskir fótboltaáhugamenn bera taugar til Tottenham-hverfisins í Lundúnum. Google Maps
Sautján ára stúlka var skotin til bana í norðurhluta Lundúna í gærkvöldi. Lögregla var send að Chalgrove Road, sem liggur í Tottenham-hverfinu, um klukkan 21:30 að staðartíma eftir að tilkynning hafði borist um skothvelli. Þar fannst stúlkan í blóði sínu og var úrskurðuð látin á sjúkrahúsi um klukkustund síðar. Þá liggur 16 ára strákur þungt haldinn á sjúkrahúsi í austurhluta borgarinnar eftir að hafa verið skotinn í annarri árás, sem jafnframt átti sér stað í gærkvöldi í Lundúnum. Annar drengur á táningsaldri var jafnframt stunginn með eggvopni. Sérstaklega er minnst á árásirnar í gærkvöldi á vef breska ríkisútvarpsins nú í morgun vegna nýútkominnar skýrslu um ofbeldi í höfuðborginni. Meðal niðurstaðna hennar voru tölur sem benda til að fleiri morð hafi verið framin í Lundúnum í febrúar og mars á þessu ári en í New York á sama tímabili. Lögreglan segist ekki vita á þessu stigi málsins hvort árásir gærkvöldsins tengist. Málin séu til rannsóknar og hefur aðstandendum stúlkunnar verið greint frá örlögum hennar. Enginn hefur verið handtekinn vegna árásanna.
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira