Bjargað eftir 12 klukkustundir í skolpi Stefán Ó. Jónsson skrifar 3. apríl 2018 07:35 Handafar sem kom leitarmönnum á sporið sést hér fyrir miðri mynd. Vísir/AP
Þrettán ára gömlum dreng var bjargað á sunnudag eftir að hafa flotið um í hinu ógnarstóra skolpkerfi Los Angeles-borgar í 12 klukkustundir. Jesse Hernandez og vinir hans höfðu gert sér það að leika að labba á viðarplönkum sem búið var að leggja yfir brunn sem lá niður í skolpkerfið. Þegar einn plankanna brotnaði hrapaði Hernandez næstum 8 metra ofan í skolpið, sem þaut á fleygiferð að sögn talsmanns slökkviliðs borgarinnar. Vinir stráksins gerðu foreldrum viðvart sem höfðu umsvifalaust samband við neyðarlínuna. Hófst þá heljarinnar leit að Hernandez sem átti eftir að standa yfir í 12 klukkustundir. Jesse Hernandez er hrósað fyrir að hafa aldrei misst vonina.Slökkvilið Los AngelesSkolpkerfi Los Angeles er gríðarstórt og líkast völundarhúsi að sögn The Guardian, enda borgin ein sú fjölmennasta í heimi og salernin því all nokkur. Björgunarsveitir notuðust við margvísleg tæki og tól við leitina, eins og sérútbúna flotpramma og litlar myndavélar sem þræddar voru ofan í skolplagnirnar. Alls tóku um 100 manns þátt í leitinni þegar mest lét. Eftir að hafa kannað um 741 metra af skolplögnum komu þeir auga á handafar í einni lögninni og eftir að hafa opnað nálægan brunn heyrðust hjálparköll frá Jesse Hernandez. Björgunarsveitir létu því brunaslöngu síga ofan í brunninn og hífðu drenginn upp, hálfum sólarhring eftir að hafa fallið ofan í skolpið. Drengurinn var ómeiddur eftir allt volkið en var þó þrifinn og sótthreinsaður í bak og fyrir. Jesse Hernandez er á vef Guardian hrósað fyrir ótrúlega þrautseigju og er hann dásamaður fyrir að hafa aldrei gefist upp þrátt fyrir að litlar líkur væru á að hann myndi nokkurn tímann finnast. „Það er augljóst að hann er engin mannleysa,“ er til að mynda haft eftir einum leitarmannanna.
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira