Fann dóttur sína eftir 24 ára leit Stefán Ó. Jónsson skrifar 3. apríl 2018 08:45 Wang Mingqing hafði leitað dóttur sinnar á hverjum degi frá því að hún hvarf úr ávaxtasölu hans fyrir 24 árum síðan. CFP
Kínverskur maður hefur aftur komist í samband við dóttur sína eftir að hafa leitað hennar í um aldarfjórðung. Til að auðvelda sér leitina ákvað maðurinn, Wang Mingqing, meira að segja að skipta um starfsvettvang og gerast leigubílstjóri, í von um að dóttir hans myndi einhvern tímann setjast upp í bílinn. Það kom þó aldrei til þess heldur hafði dóttir hans, Qifeng, að lokum samband við Wang eftir að hafa rekist á fréttir af honum á netinu. Sagan hefur farið sem eldur í sinu um Kína og fagna fjölmargir Kínverjar endurfundunum, sem áttu sér stað í dag. Qifeng hvarf þegar hún var aðeins þriggja ára gömul ef marka má breska ríkisútvarpið. Wang og eiginkona hans störfuðu á þeim tíma sem ávaxtasölumenn og áttuðu sig á því við lok eins vinnudagsins að dóttir þeirra væri horfin. Hjónin vörðu næstu árum í að leita hennar í borginni Chengdu, þar sem þau bjuggu og störfuðu, og auglýstu eftir henni í blöðum og í smáauglýsingum á netinu. Þau yfirgáfu aldrei borgina í leit sinni enda trúðu þau því að Qifeng myndi að lokum rata til þeirra. Það var svo árið 2015 sem Wang ákvað að gerast leigubílstjóri til að auka líkurnar á endurfundunum. Hann kom fyrir auglýsingu í bíl sínum og lét alla farþega sína fá lítinn dreifimiða með upplýsingum um Qifeng. Hann átti þó enga mynd af dóttur sinni heldur myndskreytti auglýsingarnar og dreifimiðana með myndum af hinum dætrum sínum, sem hann sagði að litu út eins og Qifeng. Þessi herferð Wangs vakti fljótt athygli þarlendra fjölmiðla. „Einn daginn mun dóttir mín kannski sitja í bílnum!“ er haft eftir Wang í kínverskum miðlum.Kang Ying sendi Wang Mingqing mynd af sér. Augljós líkindi segir pabbinn.CFPÞað var svo í fyrra sem lögreglan fékk teiknara til að rissa upp mynd sem sýndi Qifeng eins og hún gæti litið út sem fullorðin kona. Leit Wangs hafði sem fyrr segir vakið mikla athygli og fór myndin því á mikið flug á netmiðlum. Í mörg þúsund kílómetra fjarlægð rakst kona að nafni Kang Ying á myndina og furðaði sig á því hversu lík hún væri teikningunni. Hún setti sig því í samband við Wang fyrr á þessu ári og áttuðu þau sig fljótt á því að þau ættu ýmislegt sameiginlegt. Til að mynda væru þau bæði með ör á enninu og þá ætti þeim einnig til að verða mjög óglatt þegar þau grétu. Því ákváðu þau að taka DNA-próf og niðurstöðurnar voru eins afgerandi og þær verða. Kang Ying reyndist vera Qifeng. Feðginin hittust í morgun í fyrsta skipti í 24 ár og segist Wang vera himinlifandi með endurfundina. Kínverskir miðlar segja jafnframt frá því að Kang Ying hafi alist upp í um 20 kílómetra fjarlægð frá heimili foreldra hennar. Hvernig hún rataði þangað liggur þó enn ekki fyrir.
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira