150 hvalir óðu á land Stefán Ó. Jónsson skrifar 23. mars 2018 06:52 Um helmingur hvalahópsins er sagður dauður. Stjórnvöld í Vestur-Ástralíu
Víðtækar björgunaraðgerðir standa nú yfir í Ástralíu eftir að rúmlega 150 grindhvalir óðu þar á land í morgun. Að sögn breska ríkisútvarpsins kom sjómaður auga á dýrin er hann sigldi meðfram ströndum Hamelin-flóa, um 300 kílómetra sunnan af borginni Perth í vesturhluta landsins. Um helmingur hvalanna er sagður vera dauður en ekki er enn vitað hvers vegna þeir leituðu upp á land, þó grindhvalahópar hafi áður orðið uppvísir að sambærilegri landgöngu. Björgunarfólk gerir nú hvað það getur til að bjarga eftirlifandi hvölum og reynir að nýta sér háflóð til að ýta þeim aftur á haf út. Hvassviðri og rigning virðist þó ætla að torvelda björgunaraðgerðir og segja talsmenn björgunarhópsins að hann sé hóflega bjartsýnn um árangur. Stjórnvöld í Vestur-Ástralíu hafa jafnframt gefið út hákarlaviðvörun vegna grindhvalavöðunnar og biðlað til fólks að halda sig frá ströndinni. Óttast er að hákarlar kunni að renna á lyktina og flykkjast á svæðið þar sem á annan tug björgunarmanna keppir við tímann.
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Sjá meira