Meintur þrælahaldari og leiðtogi sértrúarsafnaðar handtekinn Stefán Ó. Jónsson skrifar 27. mars 2018 08:39 Keith Raniere hefur búið í felum í Mexíkó undanfarna mánuði Skjáskot
Bandaríska alríkislögreglan hefur handtekið Keith Raniere, alræmdan leiðtoga „sjálfshjálparhóps“ þar í landi, sem talinn er hafa stundað mansal og hneppt konur í kynlífsþrælkun í stórum stíl. Saksóknarar segja Raniere hafa haft yfirumsjón með þaulskipulögðu „þrælakerfi,“ eins og það er orðað á vef breska ríkisútvarpsins, þar sem kvenkyns meðlimum sjálfshjálparhópsins Nxivm (borið fram Nexium) var gert að sænga hjá honum. Þá á hann einnig að hafa brennimerkt þær með nafninu sínu. Raniere verður leiddur fyrir dómara í Texas í dag en hann hefur verið á flótta frá því í fyrra. Eftir að fyrrverandi meðlimir Nxivm ræddu starfshætti hans í fjölmiðlum ákvað Raniere að stinga af og var hann að endingu handtekinn í Mexíkó. Í grein New York Times í október í fyrra greindi hópur kvenna frá framferði Raniere og varð það til þess að lögregluyfirvöld hófu formlega rannsókn á málinu. Raniere hefur þó neitað að hafa brotið af sér og segir að allar gjörðir hans hafi notið samþykkis annarra meðlima Nxivm. Hann vísaði jafnframt til „sjálfstæðrar rannsóknar“ sem ekki hafi sýnt fram á neitt misjafnt í hegðun hans. Talið er að rúmlega 16 þúsund manns hafi leitað á náðir Nxivm frá árinu 1998 en hópurinn er sagður hverfast um mannúð og sjálfshjálp. Hann hefur reglulega ratað á síður blaðanna í gegnum árin, til að mynda árið 2009 þegar hópurinn flutti Dalai Lama til Bandaríkjanna og árið 2012 þegar Nxivm var sagður vera sértrúarsöfnuður.
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira