Búast við snjókomu víða um landið á páskadag Sylvía Hall skrifar 29. mars 2018 10:27 Á páskadag má búast við kólnandi veðri. VÍSIR/HANNA
Úrkomusamt verður á Suðaustur- og Austurlandi í dag en þurrt annars staðar. Hægur vindur verður um allt land og hiti víðast hvar yfir frostmarki. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar. Þar kemur einnig fram að áfram verði hægur vindur fram yfir morgundag en annað kvöld megi búast við einhverri úrkomu og norðaustanátt. Á laugardag er útlit fyrir norðaustlæga átt með minniháttar éljum norðantil en úrkomubakki færist suður af landinu um kvöldið. Á páskadag má búast við kólnandi veðri og örlítilli snjókomu í öllum landshlutum. Veðurhorfur á landinu Spáð er rigningu eða slyddu á austanverðu landinu og 3-10 m/s austlægri átt en þurrt vestan til. Úrkomuminna verður á landinu seinni partinn í dag og hiti á bilinu 1-9 stig. Mildast verður veðrið á Suðvesturlandi. Reikna má með dálítilli úrkomu á morgun víða á landinu og svalara veðri.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ laugardag:Austlæg átt, 8-13 m/s og víða skúrir eða él, en úrkomulítið NV-lands. Hiti að 5 stigum S-til, en annars vægt frost. Á sunnudag (páskadagur):Austlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og él eða dálítil snjókoma í öllum landshlutum. Kólnandi veður. Á mánudag (annar í páskum), þriðjudag og miðvikudag:Útlit fyrir norðaustanátt með éljagangi og svölu veðri, en yfirleitt bjartviðri V-lands.Færð og aðstæður Vegir eru víðast hvar auðir á Suðurlandi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Þó eru hálkublettir í Þrengslum, á Sandsskeiði, Hellisheiði, Mosfellsheiði og á nokkrum vegum í uppsveitum. Vegir eru greiðfærir á Vesturlandi - og eins á láglendi á Vestfjörðum en þar er vetrarfærð á fjallvegum. Dynjandisheiði er lokuð. Á Norðurlandi er víðast greiðfært en hálka er á Öxnadalsheiði. Það er hálka á Norðaustur- og Austurlandi, einnig er þoka á Vopnafjarðarheiði. Snjóþekja og skafreningur er á Fjarðarheiði. Krapi og éljagangur er á Fagradal og frá Reyðarfirði að Breiðdalsvík. Breiðdalsheiði og Öxi eru ófærar. Auður vegur er með suðausturströndinni en hálkublettir eru þó á Mýrdalssandi.
Samgöngur Veður Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Fleiri fréttir Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Sjá meira