Síðasti dagur til að skila skattframtali í dag Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 13. mars 2018 14:12 Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri, segir góðan gang í framtalsskilunum í ár. vísir/ÞÞ
Frestur til að skila inn skattframtali til ríkisskattstjóra rennur út í dag. Hægt er að sækja um frest sé maður í tímaþröng en fresturinn sem veittur er er þrír dagar, eða til 16. mars. Skattframtalinu er skilað í gegnum skattur.is og segir Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri, að nánast allir, eða 99 prósent framteljenda, skili skattframtalinu rafrænt. Spurður út í það hvernig skilin hafa verið segir Skúli að mikill gangur hafi verið í þeim. Þannig hafi tölur sem teknar voru saman fyrir helgi og bornar saman við tölur frá sama tíma í fyrra sýnt að skilin í ár eru 37 prósent betri. Núna hafa síðan alls 152.505 manns skilað skattframtali en alls eru 290.000 einstaklingar skattskyldir að sögn ríkisskattstjóra. Skúli kveðst ekki hafa nákvæma tölu yfir þá sem hafa sótt um frest til að skila en undanfarin ár hafa um 70 þúsund manns sótt um frest og má búast við að fjöldinn verði svipaður í ár.Fjöldi erlendra verkamanna þurft aðstoð við framtalsgerðina „Það er búin að vera mikil traffík til okkar og komið nokkur þúsund manns en stór hluti af því eru erlendir ríkisborgarar sem búa erlendis en starfa hér á landi. Það eru verkamenn sem vinna í byggingargeiranum og ýmsum öðrum geirum sem verða skattskyldir hérna því þeir eru hluta úr ári hér. Þeir þurfa margir hverjir aðstoð og við höfum veitt þá aðstoð,“ segir Skúli. Þá eru skattframtöl frá svokölluðum fagaðilum, það er endurskoðendum og bókurum, fyrr á ferðinni en undanfarin ár en þeir hafa frest til 7. apríl til að skila framtölum einstaklinga. Aðspurður hvers vegna hann haldi að það sé vísar Skúli í það að ríkisskattstjóri hafi auglýst framtalsskilin nokkuð grimmt undanfarið, meðal annars á vefmiðlum og í dagblöðum. „Framhaldið af þessu er síðan það að við stefnum að því að ljúka álagningunni mánuði fyrr heldur en í fyrra. Við ljúkum henni 31. maí sem er þá tveimur mánuðum fyrr en var fyrir fjórum árum. Síðan flýttum við því fyrir þremur árum þegar það kom í lok júní og núna mun það koma í lok maí. Þannig að það er tiltölulega stuttur tími frá því að menn skila framtali og þar til að uppgjörið liggur fyrir,“ segir Skúli.„Það á alltaf að skila framtali“ En hvað gerist ef maður skilar ekki skattframtali? „Þá eru skattstofnar áætlaðir á grundvelli þeirra upplýsinga sem við höfum. Það segir í lögunum að það beri að tryggja að áætlunin sé ekki of lág. Þá er ákveðnum prósentum bætt við. Aðilar sem ekki skila framtali, þeir lenda í vandræðum fyrr eða seinna því ef þeir þurfa til dæmis að sækja um lán eða eitthvað þess háttar þá er skattframtalið grundvöllur og þá vantar upplýsingar og svo framvegis. Það á alltaf að skila framtali og þetta tekur mjög stuttan tíma hjá langflestum aðilum,“ segir Skúli.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira