Sprengjufaraldur í Texas Stefán Ó. Jónsson skrifar 19. mars 2018 06:03 Lögreglan í Austin hefur brugðist við rúmlega 700 ábendingum um grunsamlega pakka síðastliðna viku. CNN
Tveir eru særðir eftir sprengingu í borginni Austin í Texas-ríki Bandaríkjanna. Síðustu vikur hafa sprengjur sem faldar hafa verið í hvers kyns pökkum og pinklum orðið tveimur að bana og sært tvo. Lögreglan hefur ekki getað staðfest að sprengjan sem sprakk í gærkvöldi tengist fyrri sprengingum eða hvort hún telji að búast megi við fleirum. Hún hefur engu að síður beðið íbúa borgarinnar að halda sig innandyra eftir fremsta megni. Sprenging gærdagsins varð aðeins örfáum klukkustundum eftir að lögreglan hafði lofað að borga 100 þúsund bandaríkjadali, um 10 milljónir króna, fyrir upplýsingar sem gætu leitt til úrlausnar málsins. Áður hafði ríkisstjóri Texas heitið 15 þúsund dölum, einni og hálfri milljón króna, til sama málefnis.Anthony Stephan House var 29 ára og Draylen William Mason 17 ára þegar þeir létust í pakkasprengingum fyrr í þessum mánuði.FBIMennirnir tveir sem létust í sprengingunum fyrr í þessum mánuði eru báðir svartir á hörund. Lögreglan hefur því ekki útilokað að kynþáttahatur búi að baki pakkasendingunum. Íbúum Austin hefur verið ráðið frá því að snerta kassa og pakka sem þeim þykja grunsamlegir. Lögreglan telur þannig að pakkarnir hafi aðeins sprungið eftir að búið var að taka þá upp. Hundruð lögreglumanna vinnur nú að rannsókn málsins en enginn hefur verið handtekinn enn sem komið er. Laganna verðir hafa þó brugðist við 735 tilkynningum um grunsamlega pakka síðastliðna sjö daga.
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Sjá meira