Konur í Íran handteknar fyrir að mæta á fótboltaleik Henry Birgir Gunnarsson skrifar 2. mars 2018 12:30 Það eru aðeins karlmenn í stúkunni á leikjum í Íran. vísir/afp
Jafnréttismálin eiga ansi langt í land í Íran þar sem konur mega ekki einu sinni sækja knattspyrnuleiki. 35 konur gerðu tilraun til þess að mæta á fótboltaleik í Teheran í gær en er þær mættu á völlinn voru þær umsvifalaust handteknar. Þeim var þó aðeins haldið tímabundið og sleppt að leik loknum. Forseti FIFA, Gianni Infantino, var á vellinum sem og íþróttamálaráðherra Íran. Konurnar voru því að nýta tækifærið til þess að varpa ljósi á hversu glórulaust það sé að þær megi ekki fara á völlinn. Einn blaðamaður gekk svo langt að spyrja íþróttamálaráðherrann að því hvenær konum yrði leyft að mæta á knattspyrnuleiki. Útsendingin var þá rofin um leið. Konur hafa ekki mátt fara á knattspyrnuleiki í Íran síðan 1979 er gerð var bylting í landinu. Konur hafa í auknum mæli verið að berjast gegn breytingum á þessum málum með takmörkuðum árangri hingað til. Konur voru hvattar til þess að mæta á þennan tiltekna leik á samfélagsmiðlum þar sem forseti FIFA var á svæðinu. Hann hefur ekki enn tjáð sig um málið.Infantino með forseta Íran.vísir/afp
Fótbolti Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Fleiri fréttir Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Sjáðu mörkin: Norðmenn rúlluðu yfir Svía og glæsimark Isak „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu „Takk fyrir ástina“ Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Stóru liðin á eftir Kroupi Strand Larsen skoraði tvö þegar Norðmenn unnu Svía þægilega Þurfti að flauta leikinn tvisvar af 303 mörk í 500 leikjum fyrir eitt félag Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet „Ef afi minn væri með hjól þá væri hann bíll“ Gerir lítið úr „slagsmálunum“ hjá Real Madrid Keegan með fjórða stigs krabbamein United-mennirnir skoruðu bæði í rétt og rangt mark í stórsigri Brassa Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Ancelotti tekur við liði Hákons í fjarvinnu Freyr rekinn frá Brann Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Banna taktísku markvarðarleikhléin á HM Sjá meira