Barcelona vann toppslaginn á Spáni Einar Sigurvinsson skrifar 4. mars 2018 17:15 Messi fagnar marki sínu í dag. getty Barcelona hafði betur gegn Atletico Madrid þegar tvö efstu lið spænsku úrvalsdeilarinnar mættust dag. Á 26. mínútu leiksins skoraði Lionel Messi beint úr aukaspyrnu. Þetta var mark númer 600 sem Messi skorar á ferlinum. Atletico gerði sig líklega til að skora í síðari hálfleik og náði einu sinni að setja boltann í netið, er varamaðurinn Kevin Gameiro skoraði en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Barcelona jók forystu sína á toppnum í átta stig með sigrinum og er enn taplaust á tímabilinu. Atletico er í öðru sæti deildarinnar með 61 stig, en þetta var aðeins annað tap liðsins á tímabilinu. Spænski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn
Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn