Tollastríð milli Bandaríkjanna og Evrópu gæti haft alvarlegar efnahagslegar afleiðingar að mati dósents í hagfræði. Framkvæmdastjóri Samáls telur þó ólíklegt að sérstakir áltollar Trumps Bandaríkjaforseta muni hafa teljandi áhrif á Íslendinga.
Kaldar kveðjur hafa gengið milli Trumps Bandaríkjaforseta og forystumanna ESB eftir að sá fyrrnefndi kynnti nýja tolla á innflutt ál og stál á fimmtudag. Forseti framkvæmdastjórnar ESB svaraði um hæl og sagði til skoðunar að leggja sérstaka tolla á bandarískar vörur á borð við viskí, Levi‘s gallabuxur og Harley Davidson mótorhjól. Trump er hins vegar hvergi banginn og sagði í tísti í gærkvöldi að ef Evrópuríki ætluðu að skattleggja bandarískar vörur enn meira, myndi ríkisstjórn hans hækka skatta á evrópska bíla. Ásgeir Jónsson, hagfræðidósent við HÍ, segir að tollastríð af þessu tagi hafi sjaldan endað vel.
„Þetta var einmitt það sem gerðist árið 1929 í byrjun kreppunnar miklu. Þá lögðu Bandaríkjamenn á tolla, þeim var svarað af öðrum löndum og þetta vatt upp á sig.“
Nýir tollar Trumps eru ekki komnir til framkvæmdar, en bent hefur verið á að reglur og samþykktir Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar eigi að koma í veg fyrir að hægt sé að skella á nýjum tollum sísvona.
„Hann er að vísa í einhver lög um þjóðaröryggi landsins. Hann heldur því fram að það varði við þjóðaröryggi landsins að Bandaríkjamenn noti bandarískt stál og ál,“ segir Ásgeir.
Engin bein áhrif á íslenskan áliðnað
Íslendingar framleiða og flytja út umtalsvert magn af áli og eiga mikla hagsmuni í greininni. Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls, telur hins vegar ólíklegt að útspil Trumps hafi mikil áhrif á íslenska hagsmuni.
„Það ál sem framleitt er hérna fer fyrst og fremst bara á Evrópumarkað,“ segir Pétur.
Hann bendir á að þrátt fyrir hörð viðbrögð í Evrópu, sé tollum Trumps líklega helst beint að Kínverjum, sem framleiða og flytja út sífellt meira af áli.
„Það er kannski rótin að því sem Bandaríkjamenn eru að bregðast við. Obama hóf þetta ferli á sínum tíma og Trump leiddi það svo áfram. Kínverjar framleiða núna yfir helming als frumframleidds áls í heiminum,“ bendir Pétur á.
Ásgeir bendir á að þótt tollarnir snerti Íslendinga ekki beint, gætu þeir haft óbein áhrif.
„Það gætu verið afleidd áhrif ef álverð lækkar á heimsmarkaði.“
Segir tollastríð sjaldan enda vel
Hersir Aron Ólafsson skrifar
Mest lesið

Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga
Viðskipti innlent

Íslenskt sund í New York
Viðskipti erlent

Borgunarmálinu lokið og bankinn fær ekki krónu
Viðskipti innlent

Gamla nafnið verður nýja nafnið, aftur
Viðskipti erlent


Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða
Viðskipti innlent

Spá óbreyttum stýrivöxtum
Viðskipti innlent

Bein útsending: Kynningarfundur um hlutafjárútboð í Íslandsbanka
Viðskipti innlent

Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist
Viðskipti innlent

Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið
Viðskipti innlent